5 Meðan Pétur var í fangelsinu var söfnuðurinn stöðugt í bæn til Guðs fyrir honum.
6 Kvöldið áður en aftakan átti að fara fram svaf Pétur þar sem hann lá hlekkjaður milli tveggja hermanna. Aðrir verðir voru úti fyrir fangelsisdyrunum. 7 Skyndilega birti í klefanum. Engill frá Drottni var kominn og stóð hjá Pétri. Engillinn ýtti við honum, vakti hann og sagði: „Fljótur! Á fætur með þig!" Þá féllu handjárnin af Pétri. 8 „Klæddu þig, farðu í skóna og yfirhöfnina og eltu mig!" sagði hann. Pétur hlýddi.
9 Pétur yfirgaf klefann og fylgdi englinum. Hann hélt að annað hvort væri þetta draumur eða vitrun – hann trúði ekki að þetta væri raunveruleiki. 10 Þeir gengu nú fram hjá fyrstu og síðan annarri varðsveit fangelsisins og komu að járnhliðinu við götuna, sem opnaðist af sjálfu sér! Þeir gengu út á götuna og fram með húsaröðinni, en þá hvarf engillinn.
11 Skyndilega áttaði Pétur sig á hvað gerst hafði. „Þetta er þá raunveruleiki!" sagði hann við sjálfan sig. „Drottinn hefur sent engil og bjargað mér úr höndum Heródesar og frá áformum Gyðinganna." 12 Eftir stutta umhugsun ákvað hann að fara heim til Maríu, móður Jóhannesar Markúsar, en þar voru margir samankomnir til að biðja,