Publicidade

Atos 17

Erfiðleikarnir elta Pál

1 Eftir þetta leið þeirra um borgirnar Amfípólis og Appolóníu og síðan Þessaloníku, en þar var samkomuhús Gyðinga. 2 Eins og Páll var vanur fór hann í samkomuhúsið til predika. Þrjá helgidaga í röð las hann og skýrði Biblíuna fyrir fólkinu. 3 Hann benti því á spádómana um þjáningar og upprisu Krists og sannaði Jesús væri Kristur. 4 Sumir þeirra sem hlustuðu létu sannfærast og snerust til trúar, þar á meðal mikill fjöldi guðrækinna Grikkja og margar mikilsvirtar konur úr borginni.

5 En leiðtogar Gyðinganna urðu afbrýðisamir og æstu götuskrílinn gegn þeim. Múgurinn réðst húsi Jasons og ætlaði draga Pál og Sílas fyrir borgarráðið til láta refsa þeim.

6 Þeir fundu þá ekki þar, en drógu í staðinn Jason og nokkra aðra trúaða menn fyrir borgarráðið og hrópuðu: Páll og Sílas hafa vakið óeirðir um allan heim og eru þeir komnir hingað til hleypa öllu upp! 7 Jason hefur leyft þeim gista hjá sér. Hann og allir þessir eru sekir um landráð, því þeir segja Jesús konungur og hafna keisaranum." 8,9 Dómararnir litu málið mjög alvarlegum augum, eins og borgarbúar, en létu þá þó lausa gegn tryggingu.

10 Hinir kristnu flýttu sér koma Páli og Sílasi undan um nóttina og fóru með þá til Beroju. Þegar þangað kom, gengu þeir eins og venjulega inn í samkomuhúsið til predika. 11 Íbúar Beroju voru vingjarnlegri en fólkið í Þessaloníku og hlustuðu áhugasamir á boðskapinn. Þeir rannsökuðu Gamla testamentið daglega, til fullvissa sig um Páll og Sílas hefðu rétt fyrir sér. 12 Árangurinn varð margt fólk tók trú, þar á meðal nokkrar tignar grískar konur, auk margra karlmanna.

13 Þegar Gyðingarnir í Þessaloníku fréttu Páll væri predika í Beroju, komu þeir þangað og hleyptu öllu í uppnám. 14 Kristnir menn brugðu skjótt við og sendu Pál niður til strandar, en Sílas og Tímóteus urðu eftir. 15 Fylgdarmenn Páls fóru með honum til Aþenu, en sneru svo aftur til Beroju með skilaboð til Sílasar og Tímóteusar um koma strax og hitta hann.

16 Meðan Páll beið þeirra í Aþenu, varð hann fyrir miklum vonbrigðum borgin var full af skurðgoðum! 17 Hann fór í samkomuhúsið til Gyðinganna og ræddi við þá og aðra trúrækna menn. Auk þess talaði hann daglega á torginu til allra, sem þar fóru um.

Páll og heimspekingarnir í Aþenu

18 Þá tóku nokkrir Epíkúringar og Stóuspekingar þrátta við hann. Þegar hann sagði þeim frá Jesú og upprisu hans, sögðu sumir: Hvaða rugl er þetta!" og aðrir: Þú ert boða einhverja ókunna guði."

19 Þeir buðu honum með sér upp á Aresarhæð, þar sem menn voru vanir skiptast á skoðunum, og sögðu: Segðu okkur eitthvað meira um þessa nýju trú. 20 Hún virðist vera mjög óvenjuleg og okkur langar heyra meira." 21 Aþenubúar, og þeir sem flutt höfðu til borgarinnar, virtust eyða öllum sínum tíma í viðræður um nýjustu viðhorf og kenningar. 22 Páll stóð frammi fyrir þessum mönnum á Aresarhæð og sagði: Aþenumenn, ég hef tekið eftir því þið eruð mjög trúhneigðir. 23 Á göngu minni um borgina ég fjölmörg ölturu og á eitt þeirra var ritað: Til óþekkta guðsins. Þið hafið sem sagt tilbeðið Guð án þess þekkja hann, en skal ég segja ykkur frá honum.

24 Hann skapaði heiminn og allt sem í honum er. En af því hann er Drottinn himins og jarðar, býr hann ekki í musterum, sem menn hafa reist. 25 Því síður annast mannlegar hendur þarfir hans, því hann þarfnast einskis! Hann er sem gefur öllu líf og anda og uppfyllir allar þarfir. 26 Hann skapaði hinn fyrsta mann, og frá honum mennina, sem byggja allt yfirborð jarðarinnar. Hann ákvað fyrir fram hvenær þjóðirnar skyldu komast til valda og hvenær þær skyldu líða undir lok, og hann ákvað einnig landamæri þeirra.

27 Ætlun hans var mennirnir leituðu Guðs, svo þeir gætu nálgast hann og fundið. Hann er þó ekki fjarri neinum okkar, 28 því í honum lifum, hrærumst og erum við, eins og eitt af skáldum ykkar hefur sagt: Við erum synir Guðs." 29 Fyrst svo er, ættum við ekki hugsa okkur Guð sem líkneski gert af mönnum úr gulli, silfri eða höggvið í stein. 30 Öldum saman hefur Guð umborið slíka fáfræði hjá fólki, en hvetur hann alla til hafna skurðgoðunum og tilbiðja sig einan. 31 Hann hefur ákveðið dag einn muni hann dæma heiminn og til þess verks hefur hann valið mann og staðfest val hans með því vekja hann upp frá dauðum."

32 Þegar fólkið heyrði Pál tala um upprisu frá dauðum, hlógu sumir, en aðrir sögðu: Við skulum hlusta á þetta seinna." 33 Þannig lauk viðræðum þeirra, 34 en nokkrir héldu sig þó Páli og tóku trú. Þeirra á meðal var Díónýsíus, fulltrúi í borgarráðinu, kona, Damaris nafni, og nokkrir aðrir.

Veja também

Publicidade
Bíblia Online Bíblia Online

Bíblia Online • Versão: 2026-06-29_22-07-56-