1 Eftir þetta fór Páll frá Aþenu og kom til Korintu. 2,3 Þar komst hann í kynni við Akvílas, sem var Gyðingur frá Pontus. Hann var, ásamt konu sinni Priskillu, nýkominn til borgarinnar frá Ítalíu. En þaðan hafði þeim verið vísað burt samkvæmt þeirri ákvörðun Kládíusar keisara að reka alla Gyðinga frá Róm. Páll fór til þeirra og vegna þess að hann og Akvílas stunduðu sömu iðn, tjaldsaum, settist hann að hjá þeim og þeir unnu saman.
Páll verður postuli heiðingjanna
4 Páll fór í samkomuhús Gyðinganna á hverjum helgidegi og reyndi að sannfæra Gyðinga og Grikki, sem þangað komu. 5 Eftir að Sílas og Tímóteus komu til Korintu frá Makedóníu, varði Páll öllum tíma sínum til að predika og vitna fyrir Gyðingunum um að Jesús væri Kristur. 6 En Gyðingarnir risu gegn honum og lastmæltu Jesú. Þá hristi hann rykið af fötum sínum og sagði: „Þið berið ábyrgð á þessari ákvörðun ykkar – ég er saklaus og héðan í frá mun ég predika hjá heiðingjunum."
7 Eftir þetta dvaldist hann hjá manni að nafni Títus Jústus. Hann var ekki Gyðingur, en tilbað þó Guð. Heimili hans var í næsta húsi við samkomuhús Gyðinga. 8 Svo fór þó að lokum að Krispus, stjórnandi samkomuhússins, tók trú á Drottin, og allt hans heimafólk. Var hann skírður, auk margra annarra Korintubúa
9 Nótt eina talaði Drottinn til Páls í draumi og sagði: „Vertu ekki hræddur! Þú átt ekki að þegja heldur tala! 10 Ég er með þér og enginn getur gert þér mein, því að ég á margt fólk í þessari borg." 11 Þarna dvaldist Páll í hálft annað ár og fræddi fólkið í orði Guðs.