Pular para o conteúdo
Publicidade

Postulasagan 18:12-17

12 Þegar Gallíón varð landstjóri í Akkeu, sameinuðust Gyðingarnir gegn Páli og drógu hann fyrir landstjórann, til þess að fá hann dæmdan. 13 Þeir ákærðu Pál fyrir að hvetja menn til að tilbiðja Guð á annan hátt en rómversk lög leyfðu. 14 En rétt í því er Páll ætlaði að fara að verja mál sitt, sneri Gallíón sér að ákærendum hans og sagði: „Takið eftir, Gyðingar! Ef þessi málshöfðun væri vegna einhvers glæpsamlegs athæfis, þá væri ég skyldugur að hlusta á ykkur. 15 En fyrst þetta er aðeins þras um merkingu og túlkun ýmissa orða í ykkar heimskulegu lögum, þá er það ykkar mál. Ég kem ekki nálægt slíku!" 16 Síðan rak hann þá alla út úr réttarsalnum.

17 Þá réðist múgurinn á Sósþenes, nýja samkomuhússtjórann, og barði hann fyrir utan réttarsalinn, en Gallíón gaf því engan gaum.

Estes versículos te tocaram? Ore agora!

+581 estão orando agora.

Junte-se à corrente de oração.