Publicidade

Atos 19

Lærisveinar í Efesus taka á móti heilögum anda

1 Meðan Apollós var í Korintu, var Páll á ferðalagi um Litlu-Asíu. Hann kom til Efesus, hitti þar nokkra lærisveina 2 og spurði: Fenguð þið heilagan anda þegar þið tókuð trú?"

Nei," svöruðu þeir, Hvað áttu við? Hvað er heilagur andi?"

3 Hvaða skírn eruð þið skírðir?" spurði hann. Skírn Jóhannesar," svöruðu þeir.

4 Benti Páll þeim á skírn Jóhannesar hefði verið iðrunarskírn fyrir þá sem vildu snúa sér frá syndinni og til Guðs, en henni lokinni yrðu menn taka trú á Jesú, þann sem Jóhannes hafði sagt kæmi á eftir sér.

5 Þegar þeir heyrðu þetta, létu þeir skírast í nafni Drottins Jesú. 6 Og síðan, er Páll lagði hendur á höfuð þeirra, kom heilagur andi yfir þá og þeir töluðu tungum og spáðu fluttu boðskap frá Guði. 7 Menn þessir voru um tólf talsins.

8 Eftir þetta fór Páll til samkomuhúss Gyðinganna og þar predikaði hann djarflega á hverjum helgidegi í þrjá mánuði. Hann gerði grein fyrir hverju hann trúði og hvers vegna.

Margir sannfærðust og tóku trú á Jesú. 9 Sumir mótmæltu þó boðskap hans og höfnuðu Kristi opinberlega. Hann greindi á milli þessara tveggja hópa og tók með sér hina trúuðu, hóf nýjar samkomur í skóla Týrannusar og predikaði þar daglega. 10 Þannig hélt hann áfram í tvö ár og árangurinn var allir íbúar héraðsins Asíu bæði Gyðingar og Grikkir fengu heyra boðskap Drottins. 11 Guð gaf Páli kraft til gera óvenjuleg kraftaverk. 12 Það gerðist jafnvel er klútar eða flíkur af honum voru lögð á sjúka þeir læknuðust og illir andar fóru út af þeim.

13 Flokkur særingamanna, allt Gyðingar, hafði það starfi ferðast um og reka út illa anda. ákváðu þeir gera tilraun með nota nafn Drottins Jesú. Orðin sem nota átti til særa út illu andana voru þessi: Ég særi þig við Jesú, sem Páll predikar út með þig!" 14 Þeir voru allir synir Skeva, æðsta prests, sjö talsins. 15 En þegar þeir gerðu tilraun með þetta á manni, sem hafði illan anda, svaraði illi andinn: Jesú þekki ég og líka Pál, en hverjir eruð þið?" 16 Það skipti engum togum, hann réðist á tvo þeirra og barði þá svo þeir flýðu naktir og illa meiddir út úr húsinu.

17 Fréttin af þessu barst fljótt um alla Efesus, jafnt til Gyðinga sem Grikkja. Urðu borgarbúar óttaslegnir og nafn Jesú óx mjög í augum fólksins. 18,19 Margir hinna trúuðu, sem farið höfðu með kukl og galdra, játuðu gjörðir sínar og söfnuðu saman öllum galdrabókunum og verndargripum og brenndu opinberlega. Álitið var verðmæti bókanna næmi fimmtíu þúsund silfurpeningum! 20 Þetta sýnir glöggt hve boðskapur Guðs hafði sterk áhrif á þessu svæði.

Uppþotið í Efesus

21 Eftir þetta fannst Páli heilagur andi ætlast til hann færi yfir til Grikklands, áður en hann sneri aftur til Jerúsalem. Og þegar ég hef verið þar," sagði hann, ber mér fara til Rómar." 22 Síðan sendi hann tvo aðstoðarmenn sína, Tímóteus og Erastus, á undan sér til Grikklands, en dvaldist sjálfur enn um stund í Litlu-Asíu.

23 Um þessar mundir kom upp mikil ólga í Efesus vegna hinna kristnu. 24 Upphafið átti Demetríus, silfursmiður, en hann hafði marga menn í vinnu við smíða silfurskrín, tileinkuð grísku veiðigyðjunni Artemis. 25 Hann kallaði menn sína, og aðra sem unnu við skyldan iðnað, á ráðstefnu og sagði:

Herrar mínir, við höfum allar okkar tekjur af þessum viðskiptum. 26 Ykkur er ljóst þessi Páll hefur talið fjölmörgum trú um guðir, sem búnir eru til af mannahöndum, séu alls engir guðir. Afleiðingin er salan hjá okkur hefur stórlega dregist saman. Þetta hefur ekki aðeins gerst hér í Efesus, heldur í öllu héraðinu. 27 Vitanlega hugsa ég ekki aðeins um viðskiptalegu hliðina á þessu máli okkar fjárhagslega tap heldur einnig þann möguleika áhrif hinnar miklu gyðju, Artemisar fari minnkandi og hún, sem ekki aðeins er tilbeðin í þessum hluta Litlu-Asíu heldur um allan heim muni gleymast!"

28 Þegar fundarmenn heyrðu þetta urðu þeir ævareiðir og hrópuðu í sífellu: Mikil er Artemis Efesusmanna!"

29 Af þessum sökum safnaðist mikill mannfjöldi saman og öll borgin komst í uppnám. Múgurinn ruddist á leikvanginn, dró með sér þá Gajus og Aristarkus, fylgdarmenn Páls, til yfirheyra þá. 30 Páll vildi reyna komast inn í mannþröngina, en lærisveinarnir hindruðu það. 31 Sumir hinna rómversku embættismanna héraðsins voru vinir Páls. Þeir sendu honum boð og báðu hann hætta ekki lífi sínu með því fara þangað inn.

32 Á leikvanginum hrópaði hver í kapp við annan og þar var algjör upplausn. Engir tveir voru sammála og fæstir vissu reyndar hvers vegna þeir voru þar.

33 Þá kom einhver af Gyðingunum auga á Alexander og var hann þegar dreginn fram. Hann gaf merki um þögn og síðan reyndi hann taka til máls. 34 Þegar fólkinu varð ljóst hann var Gyðingur, æpti það og hrópaði í nærfellt tvær stundir: Mikil er Artemis Efesusmanna! Mikil er Artemis Efesusmanna!"

35 Loks tókst borgarstjóranum þagga svo niður í mannfjöldanum hann gat tekið til máls. Efesusmenn," sagði hann. Öllum er ljóst Efesus er miðstöð tilbeiðslu hinnar miklu Artemisar og það var líkneski hennar sem féll til okkar af himni. 36 Þetta er óhrekjandi staðreynd og því ættuð þið ekki láta þetta raska ykkar gera neitt í fljótfærni. 37 Samt hafið þið dregið þessa menn hingað, þótt þeir hafi hvorki stolið neinu úr musteri Artemisar lastmælt henni. 38 Ef Demetríus og smiðirnir hafa einhverja ákæru á hendur þeim, þá er rétturinn reiðubúinn taka málið fyrir undir eins, því hann er störfum núna. Mál þetta verður reka á lögmætan hátt. 39 Ef um önnur deilumál er ræða, gerið þá út um þau á hinum reglubundnu fundum borgarráðsins, 40 en svona megum við ekki fara . Við eigum áreiðanlega á hættu verða svara til saka, hjá rómversku yfirvöldunum, fyrir þetta uppþot hér í dag, því það var algjörlega tilefnislaust. Heimti Rómverjarnir skýringu, veit ég hreint ekki hvað segja skal."

41 Síðan bað hann fólkið fara og mannfjöldinn dreifðist.

Veja também

Publicidade
Bíblia Online Bíblia Online

Bíblia Online • Versão: 2026-06-29_22-07-56-