Hvítasunnudagurinn
1 Nú voru liðnar sjö vikur frá dauða og upprisu Jesú og kominn hvítasunnudagur. Þegar hinir trúuðu höfðu safnast saman þennan dag, 2 heyrðist skyndilega þytur, líkt og stormgnýr, uppi yfir þeim og fyllti húsið sem þeir voru í. 3 Síðan birtist eitthvað sem líktist eldtungum og settist á höfuð þeirra. 4 Þá fylltust þeir allir heilögum anda og fóru að tala tungumál, sem þeir höfðu aldrei lært, en heilagur andi gerði þeim kleift að tala.