17 „Á hinum síðustu dögum," segir Guð, „mun ég úthella anda mínum yfir alla menn. Og þá munu synir ykkar og dætur spá, æskumenn ykkar sjá sýnir og aldrað fólk mun dreyma merkilega drauma. 18 Heilagur andi mun koma yfir alla þjóna mína, konur og karla, og þau munu spá. 19 Ég mun láta undur gerast á himni og jörðu – blóð, eld og reykjarmökk. 20 Sólin skal verða svört og tunglið rautt eins og blóð, áður en hinn mikli og dýrlegi dagur Drottins kemur. 21 En hver sem ákallar Drottin mun frelsast."
Publicidade