41 Þeir sem trúðu orðum Péturs tóku skírn, alls um 3.000 manns. 42 Þau héldu fast við kenningu postulanna og ræktu samfélagið, brotningu brauðsins og bænirnar. 43 Öll ræktu þau trú sína vel og postularnir gerðu mörg kraftaverk.
44 Allir sem trúðu héldu hópinn og höfðu allt sameiginlegt. 45 Þeir seldu eigur sínar og skiptu síðan milli allra eftir þörfum hvers og eins. 46 Þeir komu daglega saman í musterinu, til að lofa Guð og tilbiðja. Einnig hittist fólkið í smáhópum, í heimahúsum, þar sem brauðið var brotið. Þau neyttu fæðunnar með gleði og þakklæti, 47 og vegsömuðu Guð. Þau voru vinsæl meðal allra og Drottinn bætti daglega í hópinn nýju fólki sem lét frelsast.