Publicidade

Atos 24

1 Fimm dögum síðar kom Ananías æðsti prestur ásamt nokkrum leiðtogum Gyðinga og lögfræðingnum Tertúllusi til sækja málið gegn Páli. 2 Tertúllus var kallaður fyrir landstjórann og bar þar fram ákærur gegn Páli. Hann sagði:

3 Göfugi Felix, fyrir þitt tilstilli höfum við Gyðingar fengið lifa í friði og þú hefur stórlega rétt hlut okkar. 4 En til tefja þig sem minnst, bið ég þig vinsamlegast hlusta á mig andartak meðan ég skýri þér stuttlega frá ákærum okkar gegn þessum manni. 5 Við höfum komist því hann veldur vandræðum um allan heim og æsir Gyðinga til óeirða gegn rómverskum yfirvöldum. Hann er forsprakki sértrúarflokks sem þekktur er undir nafninu nasarearnir. 6 Auk alls þessa reyndi hann saurga musterið, en þá gripum við hann.

Við ætluðum veita honum verðskuldaða ráðningu, 7 en þá kom Lýsías hersveitarforingi og tók hann af okkur með ofbeldi. 8 Hann krafðist þess farið yrði með mál hans eftir rómverskum lögum. Þú getur sjálfur gengið úr skugga um réttmæti ásakana okkar með því yfirheyra manninn."

9 Þessu samsinntu hinir Gyðingarnir og lýstu yfir því framburður Tertúllusar væri réttur.

10 var röðin komin Páli. Landstjórinn gaf honum bendingu um rísa á fætur og tala máli sínu.

Páll tók til máls og sagði: Mér er kunnugt um, herra, þú hefur verið dómari í málum Gyðinga um árabil og finnst mér gott vita það, þegar ég flyt varnarræðu mína. 11 Þú munt fljótt komast því ekki eru liðnir nema tólf dagar síðan ég kom til Jerúsalem, til biðjast fyrir í musterinu. 12 Einnig ég hef ekki komið af stað óeirðum í nokkru samkomuhúsi Gyðinga á götum nokkurrar borgar. 13 Þessir menn geta áreiðanlega ekki sannað neina af þeim ásökunum, sem þeir hafa borið á mig.

14 En eitt vil ég játa og það er ég trúi þeirri hjálpræðisleið sem þeir kalla sértrú. Ég þjóna Guði á sama hátt og forfeður okkar, og ég vil taka það fram, ég trúi öllu sem skrifað er í lögum Gyðinga og ritum spámannanna. 15 Þessir menn trúa því bæði vondir og góðir muni rísa upp og sama segi ég. 16 Af þessum ástæðum reyni ég ávallt hafa góða samvisku, bæði gagnvart Guði og mönnum.

17 Eftir nokkurra ára fjarveru kom ég aftur til Jerúsalem og hafði þá með mér peninga til aðstoðar Gyðingum. Einnig kom ég til færa Guði fórn. 18 Ákærendur mínir sáu mig í musterinu, þegar ég var bera fram þakkarfórn mína. Ég hafði rakað höfuð mitt eins og lög Gyðinga gera ráð fyrir og umhverfis mig var hvorki æstur múgur uppþot. Þar voru hins vegar nokkrir Gyðingar frá Litlu-Asíu 19 þeir ættu reyndar vera hér, hafi þeir eitthvað ásaka mig fyrir. 20 En gerðu eitt. Spurðu þessa menn, hér og , hvaða sök Gyðingaráðið hafi fundið hjá mér, 21 aðra en þá ég kallaði upp: Ég er hér fyrir rétti í dag til verja þá trú mína dauðir muni rísa upp!" "

22 Felix, sem vissi vel kristnir menn voru ekki vanir valda óeirðum, bað Gyðinga bíða komu Lýsíasar hersveitarforingja og þá mundi hann dæma í málinu.

23 Síðan bauð hann Páli skyldi haldið í fangelsi. Jafnframt gaf hann vörðunum fyrirmæli um fara vel með hann og leyfa vinum hans heimsækja hann.

24 Nokkrum dögum síðar kom Felix, ásamt Drúsillu eiginkonu sinni, sem var Gyðingur. Lét hann sækja Pál og hlustuðu þau á hann segja frá trú sinni á Jesú Krist. 25 Þegar Páll fór tala um réttlæti, líf í hreinleika og komandi dóm, varð Felix mjög hræddur og sagði: Þetta er nóg í bili. Ég mun kalla á þig aftur þegar betur stendur á."

26 Hann gerði sér vonir um Páll myndi bjóða sér mútur og lét því senda eftir honum öðru hverju til þess ræða við hann. 27 Þannig liðu tvö ár. Eftir það tók Porkíus Festus við af Felix og vegna þess Felix vildi koma sér í mjúkinn hjá Gyðingunum skildi hann Pál eftir í fangelsinu.

Veja também

Publicidade
Bíblia Online Bíblia Online

Bíblia Online • Versão: 2026-06-28_14-13-17-