Pular para o conteúdo
Publicidade

Atos 3

Pétur og Jóhannes lækna lamaðan mann

1 Dag nokkurn fóru Pétur og Jóhannes upp í musterið til þess taka þátt í hinni daglegu bænastund, sem var klukkan þrjú síðdegis. 2 Þegar þeir gengu inn, sáu þeir lamaður maður var borinn þangað og lagður við eitt musterishliðið, sem kallað var Fögrudyr. Þarna var hann vanur vera á hverjum degi. 3 Þegar Pétur og Jóhannes gengu fram hjá honum, bað hann þá um peninga.

4 Þeir virtu hann fyrir sér og Pétur sagði: Horfðu hingað."

5 Lamaði maðurinn einblíndi á þá í von um eitthvað.

6 Peninga á ég ekki," sagði Pétur, en ég skal gefa þér það sem ég hef. Í nafni Jesú Krists frá Nasaret, segi ég: Gakktu!"

7,8 Pétur tók í höndina á lamaða manninum til reisa hann upp. Um leið urðu fætur hans og ökklar styrkir og hann stökk á fætur. Hann stóð andartak kyrr, en fór síðan ganga! Hann gekk, hljóp og lofaði Guð og fór svo með þeim inn í musterið. 9 Þegar fólkið, sem var inni í musterinu, manninn ganga um og lofa Guð, 10 áttaði það sig. Þetta var lamaði betlarinn, sem það hafði séð svo oft við Fögrudyr. Allir urðu furðu lostnir.

Veja também