Pétur og Jóhannes teknir höndum
1 Á meðan Pétur og Jóhannes voru að tala til fólksins komu æðstu prestarnir, foringi musterislögreglunnar og nokkrir saddúkear til þeirra. 2 Þeim gramdist mjög að Pétur og Jóhannes skyldu boða það að Jesús hefði risið upp frá dauðum, 3 og tóku þá því fasta. En nú var komið kvöld og þess vegna settu þeir þá í gæsluvarðhald yfir nóttina.