29 Drottinn, þú heyrir hótanir þeirra. Gefðu okkur, þjónum þínum, mikla djörfung þegar við predikum. 30 Sendu okkur mátt þinn til að lækna og láttu mörg undur og kraftaverk gerast í nafni Jesú, þíns heilaga þjóns."
31 Þegar þeir höfðu lokið bæninni, hrærðist staðurinn þar sem þeir voru, og þeir fylltust allir heilögum anda og tóku að predika Guðs orð með djörfung.