Tvenns konar viðhorf til peninga
32 Hinir trúuðu voru samhuga í öllu og enginn leit á eigur sínar sem einkaeign, heldur áttu þeir allt sameiginlegt. 33 Postularnir fluttu kröftugar ræður um upprisu Drottins Jesú og samfélag hinna trúuðu var mjög innilegt. 34,35 Enginn leið skort, því að allir sem áttu land eða húseignir, seldu og afhentu postulunum andvirðið, til þess að hægt væri að hjálpa hinum fátæku.