18 Þegar Símon sá að fólkið hlaut heilagan anda við handayfirlagningu postulanna, kom hann með peninga og vildi kaupa þennan kraft. 19 „Leyfið mér líka að eignast þennan kraft," bað hann, „svo að ég geti einnig lagt hendur yfir fólk og það fengið heilagan anda."
20 Pétur svaraði: „Fé þitt verði að engu, né þú sjálfur, fyrst þú heldur að hægt sé að kaupa gjöf Guðs fyrir peninga!