32 Kaflinn, sem hann var að lesa, var þannig: „Eins og lamb var hann leiddur til slátrunar og eins og kind þegir hjá þeim er klippir hana, þannig lauk hann ekki upp munni sínum. 33 Hann var auðmýktur og réttur hans frá honum tekinn. Endir var bundinn á ævi hans – hver getur lýst illsku samtíðar hans?"
34 Maðurinn spurði nú Filippus: „Átti Jesaja hér við sjálfan sig eða einhvern annan?"
35 Filippus útskýrði þá ritningarstaðinn og benti honum á marga aðra til að fræða hann um Jesú.