36 Þegar þeir höfðu ekið nokkurn spöl, komu þeir að litlu vatni. „Sjáðu!" sagði maðurinn. „Þarna er vatn. Getur þú ekki skírt mig hér?"
37 „Jú, það get ég, ef þú trúir af öllu hjarta," svaraði Filippus.
Þá sagði hinn: „Ég trúi að Jesús Kristur sé sonur Guðs."
38 Síðan stöðvaði hann vagninn, þeir stigu út í vatnið og Filippus skírði hann. 39 Þegar þeir komu upp úr vatninu, hreif andi Drottins Filippus burt, og maðurinn sá hann ekki framar, en hélt leiðar sinnar fagnandi.