5„Hvað eigið þið mörg brauð?" spurði hann. „Sjö," svöruðu þeir.
35því hver sá sem vill eiga líf sitt fyrir sjálfan sig, mun tapa því. Þeir einir, sem afneita sjálfum sér vegna mín og gleðiboðskaparins, munu kynnast lífinu í raun og veru.
5og frá Jesú Kristi, hinum trúa votti sannleikans. Hann var sá fyrsti sem reis upp frá dauðum, og hann mun aldrei deyja í annað sinn. Hann er æðri öllum konungum jarðarinnar. Dýrð sé honum! Hann elskar okkur og úthellti blóði sínu til að frelsa okkur frá syndinni.
6Hann hefur safnað okkur saman inn í ríki sitt og gert okkur að prestum Guðs, föður síns. Lofið hann og gefið honum dýrðina – alla dýrðina! Hann mun ríkja að eilífu! Amen.
7Sjá! Hann kemur í skýjunum og hvert auga mun sjá hann – jafnvel þeir, sem stungu hann. Þegar hann kemur munu þjóðirnar gráta af hryggð og skelfingu. Amen. Þannig mun það verða.
11En þegar þið verið yfirheyrðir sem fangar, hafið þá ekki áhyggjur af því hvernig þið eigið að verja ykkur – segið það sem Guð minnir ykkur á. Það verða ekki þið sem talið, heldur heilagur andi!
23Varið ykkur! Nú hef ég sagt ykkur það!
33Og fyrst þið vitið ekki stundina, verið þá allsgáðir. Vakið og biðjið og verið viðbúnir komu minni.
1Kristur frelsaði okkur til þess að við skyldum lifa í frelsi. Verið því staðföst og látið ekki aftur leggja á ykkur þrældómsfjötra, sem binda ykkur föst við lög og siðvenjur Gyðinga.
13Kæru vinir, þið hafið öðlast frelsi – ekki til að gera það sem rangt er, heldur til að elska og þjóna hvert öðru.
16Ég hvet ykkur til að hlýða aðeins því sem heilagur andi segir ykkur. Hann mun segja ykkur hvert þið eigið að fara og hvað þið eigið að gera, og þá munuð þið ekki lengur hlýðnast sjálfselskunni.
17og þeir hafa engan skilning á því hvað það er að njóta öryggis og blessunar Guðs.
24en Guð lýsir því yfir að við séum saklaus af allri andstöðu við hann, ef við treystum Jesú Kristi, sem í kærleika sínum vill fyrirgefa okkur syndir okkar.
28Þannig frelsumst við fyrir trúna á Krist en ekki fyrir það góða sem við gerum.
7Sýndu mér kærleika þinn og náð, þú sem frelsar hina ofsóttu.
8Vernda mig eins og sjáaldur augans. Hyl mig í skjóli vængja þinna.
13,14Drottinn, rís þú upp og hastaðu á þá! Rektu þá frá! Komdu og frelsaðu mig frá hinum óguðlegu sem aðeins leita jarðnesks ávinnings, þeim sem þú hefur gefið auð og völd og ótal afkomendur.