Publicidade

Colossenses 1

1 Frá Páli, sem Guð hefur valið til vera boðberi Jesú Krists, og frá bróður Tímóteusi.

2 Til ykkar, trúuðu vinir fólks Guðs í Kólossu.

Ég bið þess Guð faðir úthelli blessun sinni yfir ykkur og fylli ykkur friði sínum. 3 Í hvert sinn sem við biðjum fyrir ykkur þökkum við Guði, föður Drottins Jesú Krists, 4 því við höfum heyrt um traust ykkar til Drottins og innilegan kærleika til þeirra sem á hann trúa. 5 Það er auðséð þið hlakkið til komast til himins! Það var í fagnaðarerindinu sem þið fyrst heyrðuð um þann yndislega stað. 6 Fagnaðarerindið, sem þið heyrðuð, berst um allan heim og breytir hvarvetna lífi fólks, alveg eins og það breytti lífi ykkar strax fyrsta daginn sem þið heyrðuð það þegar ykkur varð ljós mikli kærleikur sem Guð ber til syndugra manna.

7 Það var Epafras, okkar heittelskaði samstarfsmaður, sem flutti ykkur gleðiboðskapinn. er þessi þjónn Jesú Krists hér í ykkar stað til hjálpa okkur. 8 Hann hefur sagt okkur frá kærleika ykkar til annarra manna og þann kærleika hefur heilagur andi gefið ykkur. 9 Þess vegna höfum við haldið áfram biðja Guð, allt frá því er við fréttum fyrst af ykkur, hann hjálpi ykkur skilja vilja sinn og breyta eftir honum. Við höfum beðið hann auka andlegan skilning ykkar 10 og helga líferni ykkar, svo þið verðið honum til dýrðar og stundið það eitt sem gott er, öðrum til hjálpar.

11 Þar auki biðjum við hann styrkja ykkur og fylla af sínum dýrlega mætti. Þá getið þið haldið áfram, á hverju sem gengur, 12 og þakkað föðurnum, sem hefur gefið okkur hlutdeild í öllum þeim gæðum sem tilheyra ríki ljóssins. 13 Hann hefur hrifið okkur frá valdi myrkursins, úr ríki Satans, og leitt okkur inn í ríki síns elskaða sonar, 14 sem keypti okkur frelsi með krossdauða sínum og fyrirgaf okkur syndirnar.

Hið dýrlega verk Krists

15 Kristur er sýnileg mynd hins ósýnilega Guðs. Hann var til áður en Guð skapaði heiminn. 16 Það var reyndar hans vegna sem allt var skapað á himni og jörðu, bæði það sem sést og einnig hið ósýnilega hinn andlegi heimur með tignum sínum og völdum. Krists vegna varð allt þetta til, honum til dýrðar og þjónustu. 17 Hann var á undan öllu öðru og það er hans kraftur sem viðheldur því.

18 Hann er höfuð líkamans, en líkaminn er fólk hans söfnuðurinn, kirkjan. Kirkjan á upphaf sitt í honum og hann er leiðtoginn hinn fyrsti sem rís upp frá dauðum. Þannig er hann fremstur í öllu. 19 Það var vilji Guðs allir eiginleikar guðdómsins væru í syninum.

20 Með lífi Jesú og starfi opnaði Guð allri sköpun sinni bæði á himni og jörðu leið til sín. Með krossdauða sínum, blóði sínu, kom hann á friði milli Guðs og alls á himni og jörðu ykkar líka. 21 Því þið voruð eitt sinn fjarri Guði og óvinir hans. Þið vilduð ekkert af honum vita. Hugsanir ykkar og verk voru eins og veggur milli ykkar og hans. En þrátt fyrir það hefur Jesús leitt ykkur til sín sem vini sína. 22 Það gerði hann með því deyja á krossi sem raunverulegur, sannur maður og því næst hefur hann leitt ykkur til samfélags við Guð. Þar standið þið , helguð og fullu sýknuð í hans augum. 23 Það eina sem Guð krefst, er þið trúið sannleikanum eins og hann er. Standið föst og óhagganleg í þeirri sannfæringu gleðiboðskapurinn um Jesús hafi dáið fyrir ykkur sannur og þið hvikið aldrei frá þeirri trú hann hafi frelsað ykkur. Þennan undursamlega boðskap fenguð þið heyra hvert og eitt og breiðist hann út um allan heiminn, og hef ég, Páll, verið svo gæfusamur taka þátt í því.

24 Einn þáttur í starfi mínu er þjást ykkar vegna og ég gleðst yfir gera það, því þannig hjálpa ég til við fullkomna það, sem enn vantar á þjáningar Krists, vegna líkama hans, safnaðarins.

Leyndarmálið kunngert!

25 Guð hefur sent mig til hjálpa söfnuði sínum kirkjunni og birta ykkur fyrirætlun sína, sem enginn þekkti. 26,27 Aldir liðu, kynslóðir komu og fóru, og hann gætti leyndarmálsins; en hefur honum þóknast segja það þeim sem elska hann og lifa fyrir hann. Þið voruð heiðingjar en hans dýrlega áætlun nær einnig til ykkar! Og þetta er leyndarmálið: Kristur, sem lifir í hjörtum ykkar, er ykkar eina von um eilíft líf.

28 Þess vegna segjum við líka öllum sem vilja hlusta, hvar sem er, frá Kristi og leiðbeinum þeim og fræðum eins vel og við getum. Við þráum geta leitt hvern mann fullkominn fram fyrir Guð og það er hægt vegna þess sem Kristur gerði. 29 þessu erfiða ég og kraftinn og hann er ekki lítill ég frá Kristi.

Veja também

Publicidade
Colossenses
Ver todos os capítulos de Colossenses
Bíblia Online Bíblia Online

Bíblia Online • Versão: 2026-06-28_14-13-17-