Publicidade

Colossenses 2

1 Ég vil gjarnan þið vitið hve mikið ég hef barist í bæn fyrir ykkur og fyrir söfnuðinum í Laódíkeu. Einnig fyrir mörgum öðrum vinum mínum, sem aldrei hafa kynnst mér persónulega. 2 Þetta er bæn mín fyrir ykkur: þið mættuð hljóta uppörvun, tengjast sterkum kærleiksböndum og eignast þá dýrmætu reynslu kynnast Kristi náið og af eigin raun. Hann er sjálfur þetta leyndarmál Guðs, sem loks hefur verið kunngert. 3 Í honum er finna alla fjársjóði vísdóms og þekkingar.

Látið engan trufla trú ykkar

4 Þetta segi ég vegna þess ég óttast einhver reyni blekkja ykkur með áróðri. 5 Þótt ég fjarri ykkur, þá er ég hjá ykkur í anda, og gleðst yfir velgengni ykkar og staðfestu í trúnni á Krist. 6 skuluð þið, sem tókuð á móti Kristi, einnig treysta honum til ráða fram úr vandamálum líðandi stundar og lifa í stöðugu samfélagi við hann. 7 Verið staðföst í honum, eins og jurt sem skýtur rótum og sýgur til sín næringu. Gætið þess halda áfram vaxa í Drottni, svo þið styrkist í sannleikanum. Látið líf ykkar geisla af gleði og þakklæti fyrir allt, sem hann hefur gert.

8 Látið engan villa um fyrir ykkur með heimspekilegum vangaveltum. Þessi heimskulegu svör þeirra eru byggð á hugmyndum og ályktunum manna, en ekki á orðum Krists. 9 Í Kristi sjáum við Guð holdi klæddan og í honum einum er hina sönnu visku og þekkingu finna. 10 Þegar þið lifið með Kristi, þá hafið þið allt sem þið þarfnist, því þá eruð þið í samfélagi við sjálfan Guð. Kristur er æðstur allra valdhafa og öll máttarverk eru honum undirgefin.

11 Þegar þið komuð til Krists, frelsaði hann ykkur frá hinum illu hvötum ykkar. Þetta gerði hann ekki með líkamlegum uppskurði eða umskurn, heldur með andlegum uppskurði skírninni. 12 Í skírninni ykkar gamla, eigingjarna eðli og var grafið með honum. Síðan risuð þið upp frá dauðum ásamt honum og hófuð nýtt líf í trú á orð hins almáttuga Guðs, sem vakti Krist frá dauðum.

13 Þið voruð dáin í syndinni, en Guð gaf ykkur hlutdeild í lífi Krists, fyrirgaf ykkur syndirnar, 14 ógilti allar kröfur á hendur ykkar og strikaði yfir öll ykkar brot gegn boðorðunum. Hann tók þessa sakaskrá og eyðilagði hana með því negla hana á kross Krists. 15 Á þennan hátt ógilti Guð þær ákærur, sem Satan bar fram gegn okkur vegna synda okkar, og kunngjörði öllum heiminum sigur Krists á krossinum, þar sem allar okkar syndir voru afmáðar.

16 Látið því engan ásaka ykkur fyrir það sem þið borðið eða drekkið, fyrir halda ekki gyðinglega hátíðis- og tyllidaga, tunglkomuhátíðir eða hvíldardaga Gyðinga. 17 Þetta voru aðeins tímabundnar reglur, sem féllu úr gildi þegar Kristur kom. Þær voru aðeins ímynd raunveruleikans Krists. 18 Látið engan segja ykkur þið glatist ef þið tilbiðjið ekki engla, eins og sumir halda fram. Þeir segjast hafa fengið vitrun um þetta og því beri ykkur hlýða. Þetta veldur því einu menn hrokast upp 19 og missa tengslin við Krist, höfuðið, sem við öll, líkami hans, tengjumst. Líkami Krists söfnuðurinn er tengdur saman og styrktur með taugum og sinum, og vex því aðeins hann fái næringu og styrk frá Guði.

20 Þið dóuð með Kristi og þurfið því ekki fylgja hugmyndum heimsins um hvernig eigi frelsast. Vinna góðverk og fara eftir alls konar reglum. En hvers vegna haldið þið samt áfram fylgja þessum hugmyndum og hvers vegna eruð þið ennþá bundin af reglum 21 sem banna ykkur borða, smakka eða snerta vissan mat? 22 Slíkar reglur eru ekki annað en mannaboðorð, því maturinn er ætlaður til neyslu. 23 Þessar reglur kunna virðast góðar, því þær krefjast mikillar sjálfsafneitunar, eru auðmýkjandi og valda líkamlegum óþægindum. En þær veita mönnum engan kraft til sigrast á illum hugsunum og eigingjörnum hvötum, heldur auka aðeins á stolt þeirra.

Veja também

Publicidade
Colossenses
Ver todos os capítulos de Colossenses
Bíblia Online Bíblia Online

Bíblia Online • Versão: 2026-06-28_14-13-17-