15 Eftir að ég heyrði um það hvernig þið treystið Jesú í öllu og um kærleika ykkar til allra kristinna manna 16,17 hef ég ekki látið af að þakka Guði fyrir ykkur. Ég bið Guð þess stöðugt að hann, faðir Drottins Jesú Krists, gefi ykkur visku, svo að þið skiljið fullkomlega hver Kristur er og hvað hann hefur gert fyrir ykkur. 18 Ég bið þess að hugur ykkar opnist fyrir ljósi hans, svo að þið getið skilið þá framtíð sem hann vill gefa ykkur og hefur kallað ykkur til. Ég vil að þið gerið ykkur grein fyrir þeim auðæfum sem við höfum eignast, við að taka á móti Kristi Jesú. 19 Svo bið ég þess að skilningur ykkar opnist, svo að þið sjáið hve óendanlega mikill máttur hans er, þeim til hjálpar, sem á hann trúa. Þetta er sami kröftugi mátturinn 20 og reisti Krist upp frá dauðum og leiddi hann til heiðurssætis hjá Guði á himnum. 21 Vald hans er meira en nokkurs konungs, foringja, einræðisherra eða leiðtoga, hvort heldur þessa heims eða annars. 22 Guð hefur lagt allt að fótum hans og gert hann höfuð kirkjunnar. 23 Kirkjan er líkami hans og verkfæri – hans, sem er höfundur og gjafari alls á himni og jörðu.
Publicidade
Efesusbréfið 1
Estes versículos te tocaram? Ore agora!
+581 estão orando agora.
Junte-se à corrente de oração.