3 Lofaður sé Guð, faðir Drottins Jesú Krists, sem frá himnum hefur blessað okkur ríkulega, vegna þess að við tilheyrum Jesú.
Guð kunngerir fyrirætlun sína
4 Áður en heimurinn varð til, ákvað hann að við skyldum verða börnin hans, vegna trúar okkar á Jesú Krist. Þá ákvað hann að gera okkur heilög og lýtalaus, okkur, sem stöndum frammi fyrir honum umvafin kærleika hans. 5 Allt frá upphafi var það óumbreytanleg ákvörðun hans að ættleiða okkur inn í fjölskyldu sína og það gerði hann með því að senda Jesú Krist og láta hann deyja fyrir okkur. Þetta var hans eigin ósk.
6 Lofaður sé Guð vegna undursamlegrar miskunnar sinnar við okkur og vegna kærleikans sem hann hefur sýnt okkur í sínum elskaða syni.