Pular para o conteúdo
Publicidade

Efesusbréfið 2:1-10

Þá – og nú

1 Áður voruð þið undir bölvun Guðs – þið voruð dauðadæmd vegna synda ykkar. 2 Þið bárust með straumnum og voruð eins og allir aðrir, bundin af synd og hlýðni við hinn volduga Satan, hinn volduga, sem ríkir í andaheiminum og starfar í þeim sem ekki trúa á Drottin. 3 Þannig var eitt sinn ástatt um okkur öll. Við létum stjórnast af illum hvötum, og gerðum allt það sem eigingirni okkar og vondar hugsanir leiddu okkur til – við gerðum bara eins og okkur sýndist. Þess vegna beið okkar ekki annað en dómur Guðs. Við vorum ofurseld reiði Guðs, eins og allir sem þannig er ástatt um.

4 En Guð er svo sannarlega auðugur að miskunn. 5 Þótt við værum andlega dauð og dæmd vegna synda okkar, elskaði hann okkur svo heitt að hann gaf okkur lífið á ný – það gerði hann þegar hann reisti Krist upp frá dauðum. Það er aðeins óverðskuldaðri miskunn hans að þakka að við höfum bjargast. 6 Hann vakti okkur til nýs lífs með Kristi, flutti okkur inn í ríki hans og bjó okkur stað með honum í hinu himneska ríki – allt árangur af verki Jesú Krists. 7 Til þess að við gætum borið vitni um óendanlegan kærleika hans, sem birtist í öllu því sem hann hefur gert fyrir okkur.

8 Það var miskunn Guðs að þakka að þið frelsuðust, með því að trúa á Krist. Trú ykkar er ekki ykkur að þakka, hún er líka gjöf frá Guði. 9 Hjálpræði Guðs er ekki laun fyrir góðverk ykkar og þess vegna getur heldur enginn þakkað sjálfum sér það. 10 Guð einn hefur gert okkur að því sem við erum og gefið okkur nýtt líf í Kristi Jesú, og hann ákvað fyrir löngu að þetta nýja líf skyldum við nota öðrum til hjálpar.

Estes versículos te tocaram? Ore agora!

+581 estão orando agora.

Junte-se à corrente de oração.