11 Því skuluð þið ekki gleyma að eitt sinn voruð þið heiðingjar og Gyðingarnir kölluðu ykkur guðlaus og „óhrein". (Hjörtu þeirra voru reyndar líka óhrein, enda þótt þeir hefðu haldið fast við allar sínar trúarvenjur og látið umskera sig sem tákn um guðrækni.) 12 Minnist þess að á þeim tíma þekktuð þið alls ekki Krist, þið voru óvinir þeirra sem tilheyra Guði og vissuð ekki að Guð vildi hjálpa ykkur. Þið voru glötuð, guðvana og vonlaus.
Kristur brúaði bilið
13 Nú tilheyrið þið Kristi Jesú! Þótt þið væruð áður fyrr langt frá Guði, eruð þið nálæg honum nú. Allt er það því að þakka, sem Jesús Kristur gerði fyrir ykkur með dauða sínum.