Publicidade

Efésios 3

Kraftur Guðs í okkur

1 Ég, Páll, þjónn Krists, er hér í fangelsi ykkar vegna. Ástæðan er ég boðaði ykkur fagnaðarerindið. 2,3 Ég geri ráð fyrir þið vitið Guð hefur falið mér þetta sérstaka verkefni, kunngjöra ykkur heiðingjunum kærleika Guðs, eins og ég hef áður skýrt tekið fram í einu bréfa minna. Það var sjálfur Guð sem birti mér leyndarmál sitt, heiðingjarnir fengju einnig njóta kærleika hans. 4 Þetta segi ég til þess þið vitið hvaðan ég hef vitneskju mína. 5 Frá örófi alda var þessi leyndardómur hulinn í Guði, en hefur hann opinberað þetta postulum sínum og spámönnum með heilögum anda. 6 Þetta er leyndarmálið: Heiðingjarnir munu ásamt Gyðingum, fulla hlutdeild í öllum þeim gæðum sem börn Guðs erfa. Kirkjan stendur þeim opin og loforð Guðs tilheyra þeim, þegar þeir trúa gleðiboðskapnum um Krist. 7 Guð hefur veitt mér þau miklu forréttindi mega birta þessa áætlun hans og hann hefur gefið mér kraft sinn, og sérstaka hæfileika, til leysa þetta verkefni vel af hendi.

8 Hugsið ykkur! Ekki hafði ég unnið til þess á nokkurn hátt, en samt valdi hann mig, sem er sístur allra kristinna manna, til verða þeirrar gæfu aðnjótandi, flytja heiðingjunum fagnaðarerindið um þá miklu auðlegð sem þeir eiga í Kristi. 9 Mér var falið útskýra fyrir öllum Guð væri einnig frelsari heiðingjanna kunngjöra áætlun hans frá örófi alda, hans, sem allt hefur skapað.

10 Hvers vegna gerði Guð þetta? Hann gerði það til sýna öllum valdhöfum í himinhæðum sinn fullkomna vísdóm: öll fjölskylda hans jafnt Gyðingar sem heiðingjar er sameinuð í kirkju hans, 11 einmitt eins og hann hugsaði sér í upphafi hafa það í Jesú Kristi, Drottni okkar. 12 megum við ganga rakleiðis fram fyrir Guð, án þess hræðast, fullviss þess hann muni taka vel á móti okkur þegar við komum í fylgd með Kristi og í trú á hann.

13 Látið því ekki meðferðina sem ég hef hlotið hér, draga úr ykkur kjarkinn. Ég þjáist ykkar vegna, ykkur til heiðurs og uppörvunar. 14,15 Þegar ég hugsa um mikilleik Guðs og visku, þá krýp ég á kné og bið til föðurins fyrir þessari stóru fjölskyldu hans hluti hennar er þegar á himnum en hinir eru enn hér á jörðu. 16 Ég bið hann gefi ykkur af ríkdómi sínum, sem aldrei þrýtur, svo þið styrkist fyrir heilagan anda hið innra með ykkur. 17 Ég bið þess einnig Kristur fái stöðugt meira rúm í hjörtum ykkar og megi búa í ykkur vegna trúarinnar. Ég bið þess þið festið djúpar rætur í kærleika Guðs það er góður jarðvegur. 18,19 Það er einnig bæn mín þið fáið sjálf reyna og skilja, eins og öll börn Guðs ættu gera, hversu víður og langur, djúpur og hár, kærleikur hans er. Kærleikur hans er svo mikill þið munuð aldrei geta þekkt hann eða skynjað til fulls. Þannig mun Guð fylla og auðga líf ykkar með elsku sinni og blessun.

20 Dýrð Guði, sem starfar í okkur með krafti sínum og getur gert langtum meira en við munum nokkru sinni þora biðja eða láta okkur dreyma um. 21 Dýrð er hann birti heiminum í Kristi Jesú, verði augljós í söfnuði hans um alla framtíð, öld eftir öld.

Veja também

Publicidade
Bíblia Online Bíblia Online

Bíblia Online • Versão: 2026-06-28_14-13-17-