Pular para o conteúdo
Publicidade

Efesusbréfið 4:1-12

1 Ég, sem sit í fangelsi fyrir að þjóna Drottni – ég bið ykkur að lifa og starfa eins og sæmir þeim sem hlotið hafa svo dýrlega köllun. 2 Verið auðmjúk og blíð. Verið þolinmóð og umberið hvert annað í kærleika. 3 Látið heilagan anda leiða ykkur og lifið í sátt og samlyndi.

Við höfum hvert um sig sérstaka hæfileika

4 Við erum öll hlutar af einum og sama líkama. Öll höfum við sama heilaga andann. Við erum öll kölluð til að eiga hina sömu dýrlegu framtíð. 5 Við eigum aðeins einn Drottin, eina trú, eina skírn, 6 og við höfum öll sama Guð og föður, sem er yfir okkur og með okkur og býr í okkur hverju og einu. 7 En þótt við séum öll eitt, þá hefur Kristur samt gefið okkur, hverju um sig, mismunandi hæfileika.

8 Í Davíðssálmum stendur að þegar hinn sigrandi Kristur hafi snúið aftur til himins, eftir að hafa risið upp og yfirbugað Satan, þá hafi hann gefið mönnunum dýrmætar gjafir. 9 Takið eftir að sagt er, að hann hafi snúið aftur til himins. Þetta sýnir að hann steig niður frá upphæðum himnanna og alla leið niður til neðstu hluta jarðarinnar. 10 Sá sem steig niður, er hinn sami og steig upp, og þetta gerði hann til að geta fyllt allt með sjálfum sér, hvar sem það er, allt frá því lægsta til hins hæsta.

11 Sum okkar hafa hlotið að gjöf sérstaka hæfileika til að vera postular, öðrum er gefið að predika og flytja boðskap frá Guði, sumum að vinna fólk til trúar á Krist og leiðbeina því fyrstu skrefin. Enn aðrir eru prestar eða hirðar og þeir fræða og leiðbeina hinum trúuðu á göngunni með Guði.

12 Þeir sem hafa hlotið þessa hæfileika, eiga að fullkomna þá sem trúa og þjóna þeim. Það er til þess að líkami Krists, söfnuðurinn, styrkist og þroskist,

Estes versículos te tocaram? Ore agora!

+581 estão orando agora.

Junte-se à corrente de oração.