Publicidade

Efésios 4

1 Ég, sem sit í fangelsi fyrir þjóna Drottni ég bið ykkur lifa og starfa eins og sæmir þeim sem hlotið hafa svo dýrlega köllun. 2 Verið auðmjúk og blíð. Verið þolinmóð og umberið hvert annað í kærleika. 3 Látið heilagan anda leiða ykkur og lifið í sátt og samlyndi.

Við höfum hvert um sig sérstaka hæfileika

4 Við erum öll hlutar af einum og sama líkama. Öll höfum við sama heilaga andann. Við erum öll kölluð til eiga hina sömu dýrlegu framtíð. 5 Við eigum aðeins einn Drottin, eina trú, eina skírn, 6 og við höfum öll sama Guð og föður, sem er yfir okkur og með okkur og býr í okkur hverju og einu. 7 En þótt við séum öll eitt, þá hefur Kristur samt gefið okkur, hverju um sig, mismunandi hæfileika.

8 Í Davíðssálmum stendur þegar hinn sigrandi Kristur hafi snúið aftur til himins, eftir hafa risið upp og yfirbugað Satan, þá hafi hann gefið mönnunum dýrmætar gjafir. 9 Takið eftir sagt er, hann hafi snúið aftur til himins. Þetta sýnir hann steig niður frá upphæðum himnanna og alla leið niður til neðstu hluta jarðarinnar. 10 sem steig niður, er hinn sami og steig upp, og þetta gerði hann til geta fyllt allt með sjálfum sér, hvar sem það er, allt frá því lægsta til hins hæsta.

11 Sum okkar hafa hlotið gjöf sérstaka hæfileika til vera postular, öðrum er gefið predika og flytja boðskap frá Guði, sumum vinna fólk til trúar á Krist og leiðbeina því fyrstu skrefin. Enn aðrir eru prestar eða hirðar og þeir fræða og leiðbeina hinum trúuðu á göngunni með Guði.

12 Þeir sem hafa hlotið þessa hæfileika, eiga fullkomna þá sem trúa og þjóna þeim. Það er til þess líkami Krists, söfnuðurinn, styrkist og þroskist, 13 þar til við lokum verðum öll einhuga í trúnni á frelsara okkar, Guðs son, og fullvaxta í Drottni fyllumst lífi, blessun og kærleika Krists.

14 Þá verðum við ekki lengur sem börn. Börn skipta sífellt um skoðun. Menn koma og segja þeim eitthvað nýtt eða blekkja þau vísvitandi og þá trúa þau því sem þeim er sagt. 15,16 Nei, við þráum fylgja sannleikanum og segja sannleikann, gera það sem rétt er og lifa heiðvirðu lífi, Með því líkjumst við Kristi meir og meir, honum sem er höfuð líkamans, en líkaminn er kirkjan. Þegar líkaminn söfnuðurinn er undir hans stjórn, þá er hann allur samtengdur á fullkominn hátt. Hver líkamshluti vinnur sitt sérstaka starf og hjálpar hinum hlutum líkamans, þannig allur líkaminn vex og uppbyggist í kærleika.

Lifið nýju lífi

17,18 Mig langar segja ykkur nokkuð og það eru boð frá Drottni: Héðan í frá skuluð þið ekki lifa eins og guðleysingjar, því þeir eru blindir og á villuvegi. Hjörtu þeirra eru lokuð og full af myrkri. Þeir eru fjarlægir lífinu í Guði, því þeir hafa snúið við honum bakinu og geta því hvorki skilið vilja hans verk. 19 Þeir eru hættir gera greinarmun á réttu og röngu og hafa ofurselt sig óhreinleika. Þeir eru andlega sljóir, knúðir áfram af girnd og illum hugsunum og svífast einskis.

20 Kristur ætlaði ykkur ekki lifa slíku lífi. 21 Þið sem hafið lært þekkja sannleikann um Krist, 22 eigið leggja af ykkar gömlu hegðun. Þá var líf ykkar rotið og spillt af tælandi girndum. 23 Héðan í frá verða viðhorf ykkar og hugsanir breytast til hins betra. 24 Þið eigið vera sem nýir menn. Menn sem lifa allt öðru lífi en þið lifðuð áður heilagir og góðir menn. Klæðist þessu nýja lífi eins og nýrri flík.

25 Hættið ljúga en segið sannleikann. Við erum eitt, og ef við ljúgum hvert öðru, þá spillum við fyrir okkur sjálfum. 26 Ef þið reiðist, þá syndgið ekki með því ala á reiðinni. Leggið reiðina af áður en sólin sest, 27 því reiður maður er gott skotmark hins vonda.

28 sem hefur vanið sig á stela, hætti því og noti þess í stað hendur sínar við heiðarleg störf, svo hann hafi eitthvað gefa þeim sem þurfandi eru. 29 Forðist allt óhreint tal. Segið það eitt sem gott er, og getur orðið til hjálpar og blessunar þeim sem á hlusta.

30 Hryggið ekki heilagan anda með líferni ykkar. Hann hefur innsiglað okkur Guði, til þess við varðveitumst allt til endurlausnardagsins, er við losnum við syndina fyrir fullt og allt.

31 Sýnið hér eftir hvorki beiskju, ofsa reiði. Rifrildi, grófyrði og baktal ætti ekki vera til á meðal ykkar. 32 Verið þess í stað vingjarnleg hvert við annað, góðhjörtuð og fús fyrirgefa hvert öðru, rétt eins og Guð hefur fyrirgefið ykkur í Kristi.

Veja também

Publicidade
Bíblia Online Bíblia Online

Bíblia Online • Versão: 2026-06-28_14-13-17-