Lifið nýju lífi
17,18 Mig langar að segja ykkur nokkuð og það eru boð frá Drottni: Héðan í frá skuluð þið ekki lifa eins og guðleysingjar, því að þeir eru blindir og á villuvegi. Hjörtu þeirra eru lokuð og full af myrkri. Þeir eru fjarlægir lífinu í Guði, því að þeir hafa snúið við honum bakinu og geta því hvorki skilið vilja hans né verk. 19 Þeir eru hættir að gera greinarmun á réttu og röngu og hafa ofurselt sig óhreinleika. Þeir eru andlega sljóir, knúðir áfram af girnd og illum hugsunum og svífast einskis.