31 Sýnið hér eftir hvorki beiskju, ofsa né reiði. Rifrildi, grófyrði og baktal ætti ekki að vera til á meðal ykkar. 32 Verið þess í stað vingjarnleg hvert við annað, góðhjörtuð og fús að fyrirgefa hvert öðru, rétt eins og Guð hefur fyrirgefið ykkur í Kristi.