Reynið að þóknast Guði
1 Takið Guð til fyrirmyndar í öllu, eins og barn sem elskar föður sinn og hlýðir honum. 2 Lifið í kærleika og fylgið þannig fordæmi Krists, sem elskaði ykkur og fórnaði sjálfum sér frammi fyrir Guði til að taka burt syndir ykkar. Kærleikur Krists til ykkar var Guði mjög að skapi, rétt eins og sætur ilmur.