22 Eiginkonur, lútið eiginmönnum ykkar eins og um Drottin væri að ræða. 23 Eiginmaður ber ábyrgð á konu sinni, á sama hátt og Kristur ber ábyrgð á líkama sínum, kirkjunni, en hann gaf líf sitt til að vernda hana og frelsa. 24 Eiginkonur, lútið mönnum ykkar í öllu og það fúslega, á sama hátt og söfnuðurinn er undirgefinn Kristi. 25 Eiginmenn! Sýnið konum ykkar sömu ást og umhyggju og Kristur söfnuðinum, þegar hann dó fyrir hann, 26 til að helga, hreinsa og þvo hann í skírninni og orði Guðs. 27 Þetta gerði hann til að geta leitt til sín fullkominn söfnuð, án bletts eða hrukku, heilagan og lýtalausan. 28 Á sama hátt eiga eiginmenn að koma fram við konur sínar. Þeir eiga að elska þær sem hluta af sjálfum sér. Fyrst eiginmaðurinn og eiginkonan eru eitt, þá er maðurinn í raun og veru að gera sjálfum sér greiða og elska sjálfan sig, þegar hann elskar eiginkonu sína! 29,30 Enginn hatar sinn eigin líkama, heldur gæta menn hans af mikilli umhyggju. Eins er með Krist, hann gætir líkama síns, safnaðarins, en við erum hvert um sig limir á þeim líkama.
31 Biblían sýnir ljóslega með eftirfarandi orðum að eiginmaður og eiginkona séu einn líkami: „Þegar maðurinn giftist verður hann að yfirgefa föður sinn og móður, svo að hann geti að fullu og öllu sameinast konunni og þau tvö orðið eitt." 32 Ég veit að þetta er torskilið, en sambandið milli Krists og safnaðar hans hjálpar okkur þó að skilja það. 33 Ég endurtek því: Maðurinn verður að elska konu sína sem hluta af sjálfum sér og konan verður að gæta þess að heiðra mann sinn og hlýða honum.