25 Eiginmenn! Sýnið konum ykkar sömu ást og umhyggju og Kristur söfnuðinum, þegar hann dó fyrir hann, 26 til að helga, hreinsa og þvo hann í skírninni og orði Guðs. 27 Þetta gerði hann til að geta leitt til sín fullkominn söfnuð, án bletts eða hrukku, heilagan og lýtalausan. 28 Á sama hátt eiga eiginmenn að koma fram við konur sínar. Þeir eiga að elska þær sem hluta af sjálfum sér. Fyrst eiginmaðurinn og eiginkonan eru eitt, þá er maðurinn í raun og veru að gera sjálfum sér greiða og elska sjálfan sig, þegar hann elskar eiginkonu sína!
Publicidade