28 Á sama hátt eiga eiginmenn að koma fram við konur sínar. Þeir eiga að elska þær sem hluta af sjálfum sér. Fyrst eiginmaðurinn og eiginkonan eru eitt, þá er maðurinn í raun og veru að gera sjálfum sér greiða og elska sjálfan sig, þegar hann elskar eiginkonu sína! 29,30 Enginn hatar sinn eigin líkama, heldur gæta menn hans af mikilli umhyggju. Eins er með Krist, hann gætir líkama síns, safnaðarins, en við erum hvert um sig limir á þeim líkama.