Publicidade

Efésios 5

Reynið þóknast Guði

1 Takið Guð til fyrirmyndar í öllu, eins og barn sem elskar föður sinn og hlýðir honum. 2 Lifið í kærleika og fylgið þannig fordæmi Krists, sem elskaði ykkur og fórnaði sjálfum sér frammi fyrir Guði til taka burt syndir ykkar. Kærleikur Krists til ykkar var Guði mjög skapi, rétt eins og sætur ilmur.

3 Lauslæti, óhreinleiki eða ágirnd á ekki nefnast á nafn á meðal ykkar. 4 Klúrar sögur, heimskulegt tal og grófir brandarar slíkt hæfir ykkur ekki. Í stað þess skuluð þið minna hvert annað á gæsku Guðs og verið þakklát. 5 Eitt getið þið verið viss um: sem er lauslátur og lifir í óhreinleika og ágirnd mun ekki inngöngu í ríki Krists og Guðs. Hinn ágjarni er í raun og veru hjáguðadýrkandi hann elskar og tignar lífsgæðin í stað Guðs. 6 Látið ekki blekkjast af þeim sem afsaka þessar syndir, því reiði Guðs kemur yfir alla sem þær drýgja. 7 Hafið ekkert samband við slíkt fólk, 8 því þótt myrkrið hafi eitt sinn ríkt í hjörtum ykkar, þá eru þau böðuð ljósi Drottins. Líferni ykkar ætti bera því gleggstan vott! 9 Í ljósi Drottins eflist góðvild, réttlæti og sannleikur.

10 Reynið skilja hver er vilji Drottins. 11 Takið engan þátt í því sem illt er verkum myrkursins, þau leiða aðeins til spillingar. Bendið heldur á þau og flettið ofan af þeim. 12 Það sem hinir óguðlegu leggja stund á í leyndum, er svo svívirðilegt, mér er jafnvel ómögulegt nefna það á nafn! 13 Þegar þið flettið ofan af þessum hlutum, skín ljósið á syndir þeirra og þær verða augljósar. En þegar þeir sem þannig lifa, sjá hve illa þeir eru á vegi staddir, snúa sumir þeirra sér ef til vill til Guðs og verða börn ljóssins. 14 Um þetta segir Guðs orð: Vakna þú sem sefur og rís upp frá dauðum og þá mun Kristur lýsa þér."

15,16 Gætið vel hegðun ykkar, því við lifum á erfiðum tímum. Verið ekki óskynsöm, heldur skynsöm! Notið til fullnustu hvert það tækifæri sem þið fáið til gera hið góða. 17 Gerið ekkert í hugsunarleysi en reynið skilja hver er vilji Drottins og framkvæmið hann. 18 Drekkið ykkur ekki drukkin af víni, því drykkjuskapur leiðir aðeins til ills, fyllist heldur heilögum anda og látið stjórnast af honum.

19 Ræðið saman um Drottin, vitnið í sálma og söngva, syngið andlega söngva. Syngið og leikið Drottni lof í hjörtum ykkar 20 og þakkið Guði föður fyrir alla hluti í nafni Drottins Jesú Krists.

Reglur fyrir hamingjusamt heimili

21 Verið hvert öðru undirgefin, slíkt hugarfar er Drottni velþóknanlegt. 22 Eiginkonur, lútið eiginmönnum ykkar eins og um Drottin væri ræða. 23 Eiginmaður ber ábyrgð á konu sinni, á sama hátt og Kristur ber ábyrgð á líkama sínum, kirkjunni, en hann gaf líf sitt til vernda hana og frelsa. 24 Eiginkonur, lútið mönnum ykkar í öllu og það fúslega, á sama hátt og söfnuðurinn er undirgefinn Kristi. 25 Eiginmenn! Sýnið konum ykkar sömu ást og umhyggju og Kristur söfnuðinum, þegar hann fyrir hann, 26 til helga, hreinsa og þvo hann í skírninni og orði Guðs. 27 Þetta gerði hann til geta leitt til sín fullkominn söfnuð, án bletts eða hrukku, heilagan og lýtalausan. 28 Á sama hátt eiga eiginmenn koma fram við konur sínar. Þeir eiga elska þær sem hluta af sjálfum sér. Fyrst eiginmaðurinn og eiginkonan eru eitt, þá er maðurinn í raun og veru gera sjálfum sér greiða og elska sjálfan sig, þegar hann elskar eiginkonu sína! 29,30 Enginn hatar sinn eigin líkama, heldur gæta menn hans af mikilli umhyggju. Eins er með Krist, hann gætir líkama síns, safnaðarins, en við erum hvert um sig limir á þeim líkama.

31 Biblían sýnir ljóslega með eftirfarandi orðum eiginmaður og eiginkona séu einn líkami: Þegar maðurinn giftist verður hann yfirgefa föður sinn og móður, svo hann geti fullu og öllu sameinast konunni og þau tvö orðið eitt." 32 Ég veit þetta er torskilið, en sambandið milli Krists og safnaðar hans hjálpar okkur þó skilja það. 33 Ég endurtek því: Maðurinn verður elska konu sína sem hluta af sjálfum sér og konan verður gæta þess heiðra mann sinn og hlýða honum.

Veja também

Publicidade
Bíblia Online Bíblia Online

Bíblia Online • Versão: 2026-06-28_14-13-17-