Publicidade

Efésios 6

1 Þið börn, hlýðið foreldrum ykkar! Það skuluð þið gera, því Guð hefur falið þeim bera ábyrgð á ykkur. 2 Heiðra skaltu föður þinn og móður." Þetta er fyrsta boðorðið af hinum tíu boðorðum Guðs sem endar á loforði. 3 Hvert er þá loforðið? Það er þetta: Þá muntu lifa langa og blessunarríka ævi."

4 Foreldrar, hér eru nokkur orð til ykkar. Venjið ykkur ekki á skamma börn ykkar og jagast í þeim, því þá verða þau afundin og bitur. Alið þau heldur upp í kærleika og með aga, á sama hátt og Drottinn, og þá með ábendingum og góðum ráðum.

5 Þrælar, hlýðið húsbændum ykkar. Leitist við sýna þeim allt hið besta. Þjónið þeim eins og þið væruð þjóna Kristi. 6,7 Vinnið vel, ekki aðeins meðan yfirmaður ykkar fylgist með, til þess svíkjast síðan um þegar hann snýr sér öðru. Vinnið alltaf samviskusamlega og með gleði, eins og þið væruð vinna fyrir Krist og þá gerið þið vilja Guðs. 8 Munið Drottinn mun launa ykkur allt sem þið hafið gert vel, hvort sem þið eruð þrælar eða frjálsir menn.

9 Þrælaeigendur! Komið vel fram við þræla ykkar, eins og ég sagði þeim koma fram við ykkur. Hafið ekki í hótunum við þá og munið þið eruð sjálfir þrælar Krists. Þið hafið sama yfirmann og þeir, og fer ekki í manngreinarálit.

Styrkur okkar er frá Guði

10 síðustu ætla ég minna ykkur á styrkur ykkar verður koma frá Drottni og hans volduga mætti, sem er hið innra með ykkur. 11 Klæðist alvæpni Guðs, svo þið getið staðist öll þau svik og blekkingar sem Satan beitir í árásum sínum gegn ykkur. 12 Barátta okkar er alls ekki gegn holdiklæddu fólki, heldur gegn ósýnilegum öflum eyðingar og upplausnar, hinum máttugu og illu myrkraöflum sem ríkja í þessum fallna heimi. Barátta okkar er einnig við mikinn fjölda illra anda í andaheiminum.

13 Notið öll þau vopn sem Guð hefur gefið okkur til verjast árásum óvinarins, því þá munuð þið standa sem sigurvegarar átökunum loknum.

14 Ef þetta á takast, þá þurfið þið belti sannleikans og réttlætisbrynju Guðs. 15 Verið skóuð fúsleik til flytja öðrum gleðiboðskapinn um frið við Guð. 16 Beitið trú í hverri orrustu, því hún er skjöldur sem getur stöðvað þær glóandi örvar sem Satan skýtur ykkur. 17 Gleymið ekki hjálmi hjálpræðisins og sverði heilags anda, sem er Guðs orð.

18 Verið ávallt í bæn. Biðjið um allt það sem heilagur andi minnir ykkur á og látið hann leiða ykkur í bæninni. Minnið Guð á þarfir ykkar og biðjið stöðugt fyrir öllum kristnum mönnum, hvar sem þeir eru. 19 Biðjið einnig fyrir mér, Guð gefi mér rétt orð og djörfung, þegar ég tala við aðra um Drottin og skýri fyrir þeim, hjálpræði hans einnig ætlað heiðingjunum. 20 er ég hér hlekkjaður fyrir hafa boðað þetta. Biðjið mér auðnist enn boða það sama með djörfung, eins og mér ber hér í fangelsinu.

21 Týkíkus, heittelskaður bróðir og trúr aðstoðarmaður minn í verki Drottins, mun flytja ykkur fréttir af mér. 22 Ástæða þess ég sendi hann til ykkar, er einmitt láta ykkur vita hvernig okkur líður og uppörva ykkur.

23 Kristnu vinir! Friður Guðs með ykkur, ásamt kærleika og trú frá Guði föður og Drottni Jesú Kristi. 24 Náð og blessun Guðs með öllum sem í einlægni elska Drottin Jesú Krist.

Páll

Veja também

Publicidade
Bíblia Online Bíblia Online

Bíblia Online • Versão: 2026-06-28_14-13-17-