Publicidade

Efésios 6

10 Að síðustu ætla ég að minna ykkur á að styrkur ykkar verður að koma frá Drottni og hans volduga mætti, sem er hið innra með ykkur. 11 Klæðist alvæpni Guðs, svo að þið getið staðist öll þau svik og blekkingar sem Satan beitir í árásum sínum gegn ykkur. 12 Barátta okkar er alls ekki gegn holdiklæddu fólki, heldur gegn ósýnilegum öflum eyðingar og upplausnar, hinum máttugu og illu myrkraöflum sem ríkja í þessum fallna heimi. Barátta okkar er einnig við mikinn fjölda illra anda í andaheiminum.

13 Notið öll þau vopn sem Guð hefur gefið okkur til að verjast árásum óvinarins, því að þá munuð þið standa sem sigurvegarar að átökunum loknum.

14 Ef þetta á að takast, þá þurfið þið belti sannleikans og réttlætisbrynju Guðs. 15 Verið skóuð fúsleik til að flytja öðrum gleðiboðskapinn um frið við Guð. 16 Beitið trú í hverri orrustu, því að hún er skjöldur sem getur stöðvað þær glóandi örvar sem Satan skýtur að ykkur. 17 Gleymið ekki hjálmi hjálpræðisins og sverði heilags anda, sem er Guðs orð.

Veja também

Publicidade
Efésios
Ver todos os capítulos de Efésios
Bíblia Online Bíblia Online

Bíblia Online • Versão: 2026-06-22_10-02-25-