Pular para o conteúdo
Publicidade

Efésios 6

Styrkur okkar er frá Guði

10 síðustu ætla ég minna ykkur á styrkur ykkar verður koma frá Drottni og hans volduga mætti, sem er hið innra með ykkur. 11 Klæðist alvæpni Guðs, svo þið getið staðist öll þau svik og blekkingar sem Satan beitir í árásum sínum gegn ykkur. 12 Barátta okkar er alls ekki gegn holdiklæddu fólki, heldur gegn ósýnilegum öflum eyðingar og upplausnar, hinum máttugu og illu myrkraöflum sem ríkja í þessum fallna heimi. Barátta okkar er einnig við mikinn fjölda illra anda í andaheiminum.

13 Notið öll þau vopn sem Guð hefur gefið okkur til verjast árásum óvinarins, því þá munuð þið standa sem sigurvegarar átökunum loknum.

14 Ef þetta á takast, þá þurfið þið belti sannleikans og réttlætisbrynju Guðs. 15 Verið skóuð fúsleik til flytja öðrum gleðiboðskapinn um frið við Guð. 16 Beitið trú í hverri orrustu, því hún er skjöldur sem getur stöðvað þær glóandi örvar sem Satan skýtur ykkur. 17 Gleymið ekki hjálmi hjálpræðisins og sverði heilags anda, sem er Guðs orð.

18 Verið ávallt í bæn. Biðjið um allt það sem heilagur andi minnir ykkur á og látið hann leiða ykkur í bæninni. Minnið Guð á þarfir ykkar og biðjið stöðugt fyrir öllum kristnum mönnum, hvar sem þeir eru.

Veja também