11 Klæðist alvæpni Guðs, svo að þið getið staðist öll þau svik og blekkingar sem Satan beitir í árásum sínum gegn ykkur. 12 Barátta okkar er alls ekki gegn holdiklæddu fólki, heldur gegn ósýnilegum öflum eyðingar og upplausnar, hinum máttugu og illu myrkraöflum sem ríkja í þessum fallna heimi. Barátta okkar er einnig við mikinn fjölda illra anda í andaheiminum.