13 Notið öll þau vopn sem Guð hefur gefið okkur til að verjast árásum óvinarins, því að þá munuð þið standa sem sigurvegarar að átökunum loknum.
14 Ef þetta á að takast, þá þurfið þið belti sannleikans og réttlætisbrynju Guðs. 15 Verið skóuð fúsleik til að flytja öðrum gleðiboðskapinn um frið við Guð. 16 Beitið trú í hverri orrustu, því að hún er skjöldur sem getur stöðvað þær glóandi örvar sem Satan skýtur að ykkur. 17 Gleymið ekki hjálmi hjálpræðisins og sverði heilags anda, sem er Guðs orð.
18 Verið ávallt í bæn. Biðjið um allt það sem heilagur andi minnir ykkur á og látið hann leiða ykkur í bæninni. Minnið Guð á þarfir ykkar og biðjið stöðugt fyrir öllum kristnum mönnum, hvar sem þeir eru.