12 Kæru vinir, mig langar að segja ykkur eitt: Allt sem ég hef orðið að reyna hér, hefur stórlega stuðlað að útbreiðslu gleðiboðskaparins um Krist. 13 Allir sem hér eru, þar á meðal hermennirnir sem búa hér, vita nú að eina ástæðan fyrir fangavist minni er, að ég er kristinn. 14 Fangavistin hefur einnig orðið til þess að margir hinna kristnu sem hér búa, virðast ekki lengur hræðast hlekkina. Þolinmæði mín hefur orðið þeim hvatning og þeir eru djarfari en áður að vitna um Krist.
Publicidade