Publicidade

Filipenses 1

1 Frá Páli og Tímóteusi, þjónum Krists.

Til leiðtoga safnaðanna, aðstoðarfólks þeirra og allra annarra sem kristnir eru í Filippí.

2 Guð blessi ykkur öll. Ég bið þess Guð faðir okkar og Drottinn Jesús Kristur blessi ykkur ríkulega, eitt og sérhvert, og friður hans umlyki ykkur.

3 Ég lofa Guð í hvert sinn sem ég bið fyrir ykkur. 4 Hjarta mitt er gagntekið gleði, 5 vegna þeirrar miklu aðstoðar sem þið hafið veitt mér við útbreiðslu gleðiboðskaparins, allt frá því er þið heyrðuð hann fyrst og fram á þennan dag. 6 Eitt er víst, Guð, sem byrjaði í ykkur góða verkið, mun halda því áfram þar til það fullkomnast á endurkomudegi Jesú Krists.

Kærleikur Páls til Filippímanna

7 Það er eðlilegt ég beri slíkan hug til ykkar, því þið eigið sérstakt rúm í hjarta mínu. Við höfum notið blessunar Guðs sameiginlega, bæði þegar ég var í fangelsi og einnig meðan ég var frjáls og barðist fyrir sannleikanum, og sagði öðrum frá Kristi. 8 Guð einn veit hve heitt ég elska ykkur og þrái ykkur með ástúð Krists. 9 Ég bið þess kærleikurinn sem þið berið til annarra, komi æ betur í ljós og andlegur skilningur ykkar og þekking vaxi jafnt og þétt.

10 Ég vil ykkur ætíð ljós munurinn á réttu og röngu, og þið varðveitið hreinleik huga ykkar og vilja, svo héðan í frá og til endurkomu Drottins geti enginn ásakað ykkur um neitt. 11 Ég bið þess þið gerið það eitt sem gott er og sýnið þið séuð börn Guðs, því það mun verða Drottni til lofs og dýrðar.

12 Kæru vinir, mig langar segja ykkur eitt: Allt sem ég hef orðið reyna hér, hefur stórlega stuðlað útbreiðslu gleðiboðskaparins um Krist. 13 Allir sem hér eru, þar á meðal hermennirnir sem búa hér, vita eina ástæðan fyrir fangavist minni er, ég er kristinn. 14 Fangavistin hefur einnig orðið til þess margir hinna kristnu sem hér búa, virðast ekki lengur hræðast hlekkina. Þolinmæði mín hefur orðið þeim hvatning og þeir eru djarfari en áður vitna um Krist.

15 Sumir predika vísu gleðiboðskapinn vegna þess eins þeir öfunda mig af því hvernig Guð hefur notað mig. Þeir vilja fólk tali um sig sem djarfa predikara, sem bjóða öllu birginn! Aðrir hafa hins vegar hreinan skjöld, 16,17 og þeir predika af kærleika til mín, því þeir vita Drottinn hefur leitt mig hingað til standa vörð um sannleikann. Sumir predika til gera mig afbrýðisaman. Þeir halda vinsældir þeirra og árangur valdi mér hugarangri hér í fangelsinu. 18 En hvert svo sem viðhorf þeirra er, þá er það staðreynd gleðiboðskapurinn um Krist heyrist og það gleður mig.

Þess vegna verð ég lifa áfram

19 Gleði mín er ekki á þrotum, því ég veit þið biðjið fyrir mér og heilagur andi hjálpar mér, og þá verður þetta allt mér til góðs. 20 Það segi ég satt, ég vona ég geri aldrei neitt það sem ég þurfi skammast mín fyrir, heldur ég fái framvegis, eins og hingað til, vera reiðubúinn vitna um Krist, með djörfung, ég fái verða honum til dýrðar, hvort sem ég lifi eða dey. 21 Ég lifi með Kristi og fyrir hann og því veit ég dauðinn færir mér þá blessun vera með honum. 22 En ef það lifa færir mér fleiri tækifæri til ávinna Kristi fólk, þá veit ég satt segja ekki hvort ég ætti kjósa lifa eða deyja. 23 Stundum langar mig lifa lengur, en stundum ekki, því mig langar einnig til fara héðan og vera með Kristi. Það væri miklu betra fyrir mig deyja, en þurfa vera hér. 24 Staðreyndin er hins vegar verði ég hér áfram, þá get ég orðið ykkur til enn meiri hjálpar.

25 Enn er þörf fyrir mig hér og því er ég viss um ég muni lifa hér á jörðinni, enn um sinn, til efla vöxt ykkar og auka gleði ykkar í trúnni. 26 Það gleður ykkur ég skuli verða hér áfram og gefur ykkur tilefni til lofa Jesú fyrir hann varðveiti mig, svo ég geti heimsótt ykkur á .

27 En hvað sem um mig verður, þá skiptir mestu líferni ykkar í samræmi við fagnaðarerindið. Þannig hvort sem ég hitti ykkur aftur eða ekki, þá fái ég áfram góðar fréttir um þið standið saman sem einn maður við útbreiða gleðiboðskapinn, 28 og það óttalaust, hvað svo sem óvinir ykkar gera. Það verður þeim tákn um eigin ósigur, en ykkur verður það greinilegt tákn frá Guði um hann með ykkur og hann hafi gefið ykkur eilíft líf með sér. 29 Þið hafið hlotið þau forréttindi trúa á hann, og ekki aðeins það, heldur einnig þjást hans vegna. 30 Stöndum saman í þessari baráttu. Þið hafið séð mig þjást þennan tíma sem liðinn er og eins og þið vitið, þá á ég í mikilli baráttu.

Veja também

Publicidade
Filipenses
Ver todos os capítulos de Filipenses
Bíblia Online Bíblia Online

Bíblia Online • Versão: 2026-06-28_14-13-17-