9 Ég bið þess að kærleikurinn sem þið berið til annarra, komi æ betur í ljós og að andlegur skilningur ykkar og þekking vaxi jafnt og þétt.
10 Ég vil að ykkur sé ætíð ljós munurinn á réttu og röngu, og að þið varðveitið hreinleik huga ykkar og vilja, svo að héðan í frá og til endurkomu Drottins geti enginn ásakað ykkur um neitt. 11 Ég bið þess að þið gerið það eitt sem gott er og sýnið að þið séuð börn Guðs, því að það mun verða Drottni til lofs og dýrðar.