12 Ég er ekki að segja að ég sé fullkominn. Enn hef ég ekki lært allt það sem ég á að læra, en ég stefni að því að verða það sem Kristur frelsaði mig til og vill að ég sé.
13 Nei, kæru vinir, enn er ég ekki fullkominn, en þetta er mér efst í huga: Að gleyma fortíðinni og horfa fram á við til þess sem í vændum er. 14 Ég tek á öllu sem ég á til að ná markinu og fá verðlaunin sem Guð hefur heitið okkur á himnum, og allt er það Kristi Jesú að þakka.
15 Ég vona að þið sem þroskuð eruð í trúnni, séuð mér sammála, en ef þið eruð ósammála um eitthvert atriði, þá trúi ég því að Guð muni leiða ykkur í allan sannleikann