13 Nei, kæru vinir, enn er ég ekki fullkominn, en þetta er mér efst í huga: Að gleyma fortíðinni og horfa fram á við til þess sem í vændum er. 14 Ég tek á öllu sem ég á til að ná markinu og fá verðlaunin sem Guð hefur heitið okkur á himnum, og allt er það Kristi Jesú að þakka.