Publicidade

Filipenses 4

Nokkur hvatningarorð lokum og bæn

1 Kæru vinir í Kristi, ég elska ykkur og þrái sjá ykkur, því þið eruð gleði mín og kóróna, verkalaun mín. Elsku vinir, verið stöðug í Drottni framvegis eins og hingað til.

2 langar mig biðja ykkur, Evódídu og Sýntýke, um eitt: Gerið það fyrir mig, með hjálp Drottins, sættast og standa saman.

3 Ég bið þig, kæri samherji, hjálpa þessum konum, því þær unnu við hlið mér flytja öðrum gleðitíðindin. Þær störfuðu einnig með Klemens og öðrum félögum mínum, sem eiga nöfn sín rituð í lífsins bók.

4 Verið ávallt glöð vegna samfélagsins við Drottin. Ég endurtek: Verið glöð! 5 Ljúflyndi ykkar verði öllum kunnugt. Munið Drottinn kemur skjótt! 6 Hafið ekki áhyggjur af neinu. Segið Guði frá öllum þörfum ykkar og gleymið ekki þakka honum, því hann svarar bænum. 7 Þá mun friður Guðs, sem er ofar öllum skilningi, fylla hjörtu ykkar og hugsanir, vegna þess þið tilheyrið og treystið Kristi Jesú.

8 Vinir mínir, fer ég ljúka þessu bréfi, en mig langar þó nefna eitt enn: Venjið ykkur á hugsa um það sem er satt, gott og rétt. Festið í huga ykkar hið fagra og hreina og það sem gott er í fari annarra. Hugsið um allt það sem þið getið glaðst yfir og lofað Guð fyrir. 9 Venjið ykkur á gera það sem þið lærðuð af mér og sáuð mig gera, og Guð friðarins mun vera með ykkur.

10 Ég er glaður og þakklátur og lofa Guð fyrir þið skylduð aftur veita mér aðstoð. Ykkur hefur alltaf verið umhugað senda mér það sem þið gátuð, en ég veit um tíma höfðuð þið ekki aðstöðu til þess. 11 Þið megið ekki halda ég hafi alltaf liðið skort, því ég hef lært komast af með það sem ég hef og gleðjast yfir því, hvort sem það er mikið eða lítið. 12 Ég kann lifa af því sem lítið er og einnig því sem mikið er. Ég hef lært þann leyndardóm láta mér nægja það sem ég hef, hvort sem það er magafylli eða hungur, allsnægtir eða skortur. 13 Með hjálp Krists get ég gert allt sem Guð biður mig um. Kristur gefur mér styrk og kraft. 14 En hvað sem því líður, þá var fallega gert af ykkur hjálpa mér í erfiðleikum mínum.

15 Ykkur er vel ljóst þegar ég kom fyrst með gleðitíðindin til ykkar og einnig eftir ég yfirgaf Makedóníu, þá voruð þið þeir einu sem hjálpuðu mér, bæði við gefa og þiggja. Þið voruð eini söfnuðurinn sem slíkt gerði. 16 Og þegar ég var í Þessaloníku, þá senduð þið mér tvívegis pakka. 17 Ég kann vel meta gjafir ykkar, en það sem gleður mig mest eru launin sem þið munuð uppskera og fyrir þeim hafið þið vissulega unnið.

18 sem stendur hef ég allt sem ég þarf og meira en það! Gjafirnar sem Epafrodítus kom með frá ykkur voru ríkulegar. Þær eru eins og ilmandi fórnir og eru Guði þóknanlegar. 19 Guð mun veita ykkur ríkulega allt sem þið þarfnist vegna samfélags ykkar við Krist Jesú. 20 Guði föður dýrð um aldir alda. Amen.

Páll

P.S. 21 Skilið kærri kveðju frá mér til allra kristinna í Filippí. Bræðurnir sem með mér eru, biðja heilsa. 22 Allir aðrir sem kristnir eru hér, biðja einnig heilsa ykkur, sérstaklega þeir sem starfa í höll keisarans. 23 Blessun Drottins Jesú Krists með anda ykkar.

Veja também

Publicidade
Filipenses
Ver todos os capítulos de Filipenses
Bíblia Online Bíblia Online

Bíblia Online • Versão: 2026-06-28_14-13-17-