6 Hafið ekki áhyggjur af neinu. Segið Guði frá öllum þörfum ykkar og gleymið ekki að þakka honum, því að hann svarar bænum. 7 Þá mun friður Guðs, sem er ofar öllum skilningi, fylla hjörtu ykkar og hugsanir, vegna þess að þið tilheyrið og treystið Kristi Jesú.
8 Vinir mínir, nú fer ég að ljúka þessu bréfi, en mig langar þó að nefna eitt enn: Venjið ykkur á að hugsa um það sem er satt, gott og rétt. Festið í huga ykkar hið fagra og hreina og það sem gott er í fari annarra. Hugsið um allt það sem þið getið glaðst yfir og lofað Guð fyrir. 9 Venjið ykkur á að gera það sem þið lærðuð af mér og sáuð mig gera, og Guð friðarins mun vera með ykkur.