Publicidade

Gálatas 1

1 Frá Páli, boðbera Krists, og öðrum kristnum mönnum sem hér eru.

2 Til safnaðanna í Galatalandi.

Köllun mína til kristniboðs fékk ég ekki frá hópi manna eða félagi, heldur frá Kristi Jesú sjálfum og Guði föður sem reisti Krist upp frá dauðum. 3 Friður og blessun Guðs föður og Drottins Jesú Krists með ykkur. 4 Kristur fyrir syndir okkar eins og Guð faðir hafði ætlast til, og frelsaði okkur frá öllu því illa sem ræður ríkjum í þessum heimi. 5 Dýrð Guði um aldir alda. Amen.

Ekkert annað fagnaðarerindi

6 Ég undrast hve fljótt þið hafið snúið ykkur frá Guði, sem af kærleika sínum og miskunn bauð ykkur hlut í eilífa lífinu, sem hann gefur í Kristi. Þið eruð strax komin út á annan veg til himins", veg sem hreint ekki liggur til himins! 7 Það er ekki um neina aðra leið ræða en þá sem við bentum ykkur á. Þið hafið látið blekkjast af þeim sem rangsnúa sannleikanum um Krist.

8 Ef einhver boðar aðra leið til Guðs en þá sem við boðuðum ykkur, þá hann bölvaður, jafnvel þótt það væri ég eða engill frá himni. 9 Ég endurtek: Ef einhver boðar annað fagnaðarerindi en það sem þið hafið tekið á móti, þá komi bölvun Guðs yfir hann.

10 Ykkur er ljóst ég er ekki reyna þóknast ykkur með fagurgala og smjaðri. Nei, ég reyni þóknast Guði. Ef ég væri enn reyna þóknast mönnum, þá gæti ég ekki verið þjónn Krists.

11 Kæru vinir, leið til himins, sem ég predika, er ekki byggð á hugmyndum eða óskhyggju manna. 12 Boðskapur minn er frá sjálfum Kristi Jesú og engum öðrum! Það var hann sem lagði mér orð í munn. Hann einn uppfræddi mig.

13 Þið vitið hvernig ég var meðan ég var í Gyðingdómnum. Ég elti hina kristnu miskunnarlaust, kom þeim á kné og gerði mitt besta til útrýma þeim. 14 Ég var einn trúhneigðasti Gyðingur landsins og reyndi eins og ég gat fara eftir öllum gömlu siðareglum trúar minnar.

15 En skyndilega breyttist allt! Sannleikurinn er , áður en ég fæddist, hafði Guð af miskunn sinni útvalið mig sér til eignar. 16 Síðan kallaði hann mig, því hann ætlaði mér bera syni sínum vitni meðal heiðingjanna og kynna þeim gleðitíðindin um Jesú.

Fyrst í stað sagði ég engum frá þessu. 17 Ég fór ekki til Jerúsalem til ráðgast við þá sem höfðu orðið postular á undan mér, heldur fór ég til Arabíu. Síðan fór ég aftur til Damaskus. 18 Og loks þrem árum síðar fór ég til Jerúsalem til heimsækja Pétur og dvaldist hjá honum í fimmtán daga. 19 Ég hitti aðeins einn annan postula, Jakob, bróður Drottins. 20 Þetta sem ég hef sagt ykkur er satt, það veit Guð. Þannig var þetta nákvæmlega, ég lýg ekki. 21 Eftir þessa heimsókn fór ég til Sýrlands og Kilikíu. 22 Hinir kristnu í Júdeu þekktu mig ekki persónulega. 23 Allt sem þeir vissu um mig, voru þessi ummæli: sem áður ofsótti, boðar trúna." 24 Og þeir lofuðu Guð vegna mín.

Veja também

Publicidade
Bíblia Online Bíblia Online

Bíblia Online • Versão: 2026-06-29_22-07-56-