11 Seinna kom Pétur frá Antíokkíu og þá varð ég að mótmæla framkomu hans harðlega í allra áheyrn, því að hún var allsendis óverjandi. 12 Ástæðan var sú að fyrst eftir að hann kom, þá borðaði hann með kristnum mönnum sem áður höfðu verið heiðingjar (en höfðu hvorki verið umskornir né gengist undir lög Gyðinga). Síðar komu nokkrir Gyðingar, vinir Jakobs, en þá vildi hann ekki lengur borða með heiðingjunum, því að hann var hræddur um að Gyðingunum myndi ekki líka það. En þeir voru þeirrar skoðunar að nauðsynlegt væri að láta umskerast til að geta frelsast. 13 Þá gerðist það að allir kristnu Gyðingarnir, ásamt Barnabasi, tóku að hræsna eins og Pétur, þótt þeir vissu auðvitað betur. 14 Þegar ég sá þá breyta þannig gegn betri vitund og fara ekki eftir sannleika fagnaðarerindisins, sagði ég við Pétur svo allir heyrðu: „Þótt þú sért fæddur Gyðingur, er langt um liðið frá því þú lagðir lög þeirra og siði á hilluna. Segðu mér: Hvers vegna tekur þú allt í einu upp á því núna að fá þessa heiðingja til að fylgja siðvenjum Gyðinga?