Publicidade

Gálatas 2

1 Fjórtán árum síðar fór ég aftur til Jerúsalem og þá með Barnabasi. Títus varð samferða okkur. 2 Ég fór þangað eftir beinni skipun frá Guði, til gera bræðrunum þar grein fyrir þeim boðskap sem ég hafði flutt heiðingjunum. Ég talaði við leiðtoga safnaðarins í þeirri von þeir legðu blessun sína yfir boðskapinn, 3 sem þeir og gerðu. Þeir fóru ekki einu sinni fram á Títus, félagi minn, yrði umskorinn, en hann var áður heiðingi.

Deilan um lögin"

4 Slík krafa hefði ekki heldur getað komið fram þar, nema þá frá þeim sem kalla sig kristna, en eru það ekki í reynd. Þeir þessir falsbræður höfðu laumast inn og njósnað um okkur til komast á snoðir um frelsið, sem við njótum í Kristi Jesú, og einnig til sjá hvort við hlýddum lögum Gyðinga eða ekki. Þeir reyndu flækja okkur með ýmsum lagakrókum, til hneppa okkur í bönd eins og þræla. 5 En við svöruðum þeim ekki, því við vildum ekki rugla ykkur með vangaveltum um hvort hægt væri ávinna sér hjálpræði Guðs, með því láta umskerast og hlýða lögum Gyðinga.

6 En hvað um það, leiðtogar safnaðarins í Jerúsalem gerðu enga athugasemd við það sem ég predikaði. Það skiptir raunar engu máli þótt þeir væru miklir leiðtogar, því allir eru jafnir fyrir Guði. 7-9 Sem sagt, þegar máttarstólpum safnaðarins, þeim Pétri, Jakobi og Jóhannesi, varð ljóst hversu Guð hafði notað mig til ávinna heiðingjana, á sama hátt og Pétur hafði orðið til mikillar blessunar með predikunum sínum meðal Gyðinga því það var Guð sem fékk okkur sitt verkefnið hvorum þá tókust þeir í hendur við okkur Barnabas og hvöttu okkur til halda áfram starfa á meðal heiðingjanna. Sjálfir ætluðu þeir halda áfram starfi sínu meðal Gyðinga. 10 Það eina sem þeir tóku fram, var við skyldum jafnan muna eftir rétta fátækum hjálparhönd og sjálfur hef ég reynt kappkosta það.

11 Seinna kom Pétur frá Antíokkíu og þá varð ég mótmæla framkomu hans harðlega í allra áheyrn, því hún var allsendis óverjandi. 12 Ástæðan var fyrst eftir hann kom, þá borðaði hann með kristnum mönnum sem áður höfðu verið heiðingjar (en höfðu hvorki verið umskornir gengist undir lög Gyðinga). Síðar komu nokkrir Gyðingar, vinir Jakobs, en þá vildi hann ekki lengur borða með heiðingjunum, því hann var hræddur um Gyðingunum myndi ekki líka það. En þeir voru þeirrar skoðunar nauðsynlegt væri láta umskerast til geta frelsast. 13 Þá gerðist það allir kristnu Gyðingarnir, ásamt Barnabasi, tóku hræsna eins og Pétur, þótt þeir vissu auðvitað betur. 14 Þegar ég þá breyta þannig gegn betri vitund og fara ekki eftir sannleika fagnaðarerindisins, sagði ég við Pétur svo allir heyrðu: Þótt þú sért fæddur Gyðingur, er langt um liðið frá því þú lagðir lög þeirra og siði á hilluna. Segðu mér: Hvers vegna tekur þú allt í einu upp á því núna þessa heiðingja til fylgja siðvenjum Gyðinga? 15 Báðir erum við fæddir Gyðingar og erum því ekki syndugir heiðingjar". 16 Samt vitum við vel, sem kristnir Gyðingar, við getum ekki orðið réttlátir í augum Guðs með því halda lög Gyðinga. Það er aðeins hægt með því trúa Jesús Kristur taki burt syndir okkar. Einmitt þess vegna tókum við trú á Krist, til við réttlættumst fyrir trúna, en ekki fyrir hlýðni við lög Gyðinga. Enginn maður mun nokkru sinni frelsast fyrir slíka löghlýðni."

17 En hvernig færi ef við sem treystum því Kristur frelsi okkur, kæmumst því við hefðum á röngu standa og gætum ekki frelsast, nema því aðeins við létum umskerast og héldum lög Gyðinga? Yrðum við þá ekki segja trúin á Krist hefði orðið okkur til tjóns? Nei, slíkt er fráleitt! 18 Sannleikurinn er ef við förum endurreisa gamla kerfið, sem ég hef verið rífa niður, og reynum frelsast með því halda lög Gyðinga, þá sitjum við rækilega föst í syndinni. 19 Hvað lögin snertir, er mér ljóst ég mundi aldrei geta unnið hylli Guðs með því reyna hlýðnast þeim, því mér tækist það aldrei. Með því væri ég einungis undirrita minn eigin dauðadóm. Mér varð ljóst mennirnir geta aðeins orðið Guði velþóknanlegir fyrir trúna á Krist.

20 Þegar Kristur var krossfestur, var það vegna óhlýðni minnar og synda. Því er ég krossfestur með honum, sjálfur lifi ég ekki framar, heldur lifir Kristur í mér. Það líf sem ég lifi í líkamanum er byggt á trú minni á Guðs son, sem elskaði mig og í minn stað. 21 Sumum finnst Kristur hafa dáið til einskis en það finnst mér ekki. Ef hins vegar væri hægt frelsast með því halda lög Gyðinga, þá hefði Kristur dáið til einskis.

Veja também

Publicidade
Bíblia Online Bíblia Online

Bíblia Online • Versão: 2026-06-29_22-07-56-