Lög Gyðinga frelsa engan
1 Æ, þið heimsku Galatar! Hvaða galdrameistari hefur dáleitt ykkur og lagt á ykkur þessi illu álög? Sú var tíðin að þið sáuð tilganginn með dauða Jesú Krists, jafn skýrt og ég hefði sýnt ykkur mynd af Jesú á krossinum. 2 Leyfið mér að spyrja ykkur einnar spurningar: Fenguð þið heilagan anda fyrir að halda lög Gyðinga? Nei, svo sannarlega ekki! Heilagur andi kom ekki yfir ykkur fyrr en þið höfðuð heyrt um Krist og tekið trú á hann. 3 Eruð þið orðin rugluð eða hvað? Í fyrra sinnið mistókst ykkur að eignast andlegt líf, því að þið hélduð að leiðin til þess væri að halda lög Gyðinga. Hvernig getur ykkur þá dottið í hug að nú gætuð þið þroskast í trúnni á Krist, með því að hlýða þessum lögum?