Publicidade

Gálatas 3

Lög Gyðinga frelsa engan

1 Æ, þið heimsku Galatar! Hvaða galdrameistari hefur dáleitt ykkur og lagt á ykkur þessi illu álög? var tíðin þið sáuð tilganginn með dauða Jesú Krists, jafn skýrt og ég hefði sýnt ykkur mynd af Jesú á krossinum. 2 Leyfið mér spyrja ykkur einnar spurningar: Fenguð þið heilagan anda fyrir halda lög Gyðinga? Nei, svo sannarlega ekki! Heilagur andi kom ekki yfir ykkur fyrr en þið höfðuð heyrt um Krist og tekið trú á hann. 3 Eruð þið orðin rugluð eða hvað? Í fyrra sinnið mistókst ykkur eignast andlegt líf, því þið hélduð leiðin til þess væri halda lög Gyðinga. Hvernig getur ykkur þá dottið í hug gætuð þið þroskast í trúnni á Krist, með því hlýða þessum lögum? 4 Þið sem hafið orðið líða svo mikið vegna fagnaðarerindisins, ætlið þið varpa öllu fyrir borð? Ég trúi því ekki?

5 Ég spyr aftur: Gefur Guð ykkur kraft heilags anda og lætur hann ykkur vinna máttarverk vegna hlýðni ykkar við lög Gyðinga? Nei, auðvitað ekki! Slíkt gerist hins vegar þegar þið trúið Kristi og treystið honum algjörlega.

6 Slík var einnig reynsla Abrahams. Guð lýsti hann réttlátan fyrir það eitt hann trúði loforðum Guðs. 7 Af þessu getið þið séð hinir raunverulegu afkomendur Abrahams eru þeir sem trúa á Guð og treysta honum heilshugar.

8,9 Auk þessa benti Biblían fram til þess tíma, er Guð mundi einnig frelsa heiðingjana vegna trúar þeirra. Fyrir löngu sagði Guð við Abraham: Eins og ég hef blessað þig, svo mun ég og blessa aðra þá sem mér treysta, hverrar þjóðar sem þeir eru." Af þessu er auðséð allir sem treysta Kristi, hlutdeild í blessun Abrahams.

10 Þeir sem álíta lög Gyðinga frelsi þá, eru undir bölvun Guðs. Biblían segir skýrt og skorinort: Bölvaður er hver er brýtur lögin í lögbók minni, þótt ekki nema eitt ákvæði þeirra." 11 Af þessu er ljóst aldrei mun neinn geta unnið sér hylli Guðs með því reyna halda lög Gyðinga, því Guð hefur sagt eina leiðin til verða réttlátur í hans augum leið trúarinnar. Um þetta segir spámaðurinn Habakúk: sem finnur lífið, finnur það í trúnni á Guð." 12 Hvílíkur reginmunur á þessum vegi trúarinnar og vegi laganna. Vegur laganna er þessi: Ef þú hlýðir lögunum í hverju einstöku atriði, þá muntu frelsast. 13 hefur Kristur hins vegar keypt okkur laus undan dómi þessa vonlausa lagakerfis, með því taka á sig bölvunina sem fylgdi óhlýðni okkar. Það gerði hann á krossinum og það minnir ykkur eflaust á orð Biblíunnar: Bölvaður er hver sem á tré hangir."

Loforð Guðs komu fyrst

14 getur Guð einnig blessað heiðingjana með sömu blessun og hann hét Abraham. Sömuleiðis getum við öll sem kristin erum, fengið heilagan anda með því trúa, eins og okkur hafði verið lofað. 15 Kæru vinir, við vitum í daglegu lífi er það svo gefi einhver skriflegt loforð og undirriti það, þá verður hann halda það. Hann getur ekki allt í einu ákveðið ganga á bak orða sinna.

16 var það svo Guð gaf Abraham og barni hans ákveðin loforð. Takið eftir, ekki er sagt loforðin væru til barna hans, eins og ef um alla syni hans hefði verið ræða alla Gyðinga. Nei, hér var talað um barn og þar er auðvitað átt við Krist. 17 Með þessu á ég við loforð sem Guð gaf ritaði og síðan staðfesti um við frelsumst fyrir trú, var útilokað fella úr gildi eða breyta fjögur hundruð og þrjátíu árum síðar, þegar Guð birti lög sín. 18 Ef hlýðni við þau lög gæti frelsað okkur, er augljóst þar er um aðra leið ræða til vináttu Guðs, en þá sem Abraham fór, því hann trúði hiklaust loforði Guðs.

19 En til hvers voru þá lögin? , þeim var bætt við eftir loforðið hafði verið gefið, til sýna mönnunum hversu sekir þeir væru þegar þeir brytu lög Guðs. Þessi lög áttu aðeins gilda þar til Kristur kæmi, en hann er barnið sem loforð Guðs snerist um. (Á þessu tvennu er reyndar enn meiri munur: Guð lét engla færa Móse lögin sem hann síðan færði fólkinu, 20 en þegar Guð hins vegar gaf Abraham loforð sitt, þá gerði hann það sjálfur milliliðalaust.)

21,22 Eru þá lög Guðs í andstöðu við loforð hans? Nei, vissulega ekki! Ef við gætum frelsast með því halda lögin, þá hefði Guð ekki þurft opna okkur aðra leið til losna úr klóm syndarinnar en Biblían leggur áherslu á allir séu fangar hennar. Eina undankomuleiðin er trúin á Jesú Krist og hún er öllum opin.

23 Áður en Kristur kom, vorum við undir ströngu eftirliti laganna. Við vorum bókstaflega í fjötrum, þar til við eignuðumst trúna á frelsarann.

24 Segja lögin hafi rekið okkur til Krists, sem síðan leiddi okkur með trúnni á veginn til Guðs. 25 En fyrst Kristur er kominn, þurfum við ekki lengur á þessum lögum halda til gæta okkar og leiðbeina okkur til hans. 26 erum við börn Guðs fyrir trúna á Jesú Krist, 27 og við sem skírð erum til sameinast honum, höfum íklæðst honum. 28 skiptir engu máli hvort við erum Gyðingar eða Grikkir, frjálsir menn eða þrælar, karlar eða konur. Við erum öll kristin og eitt í Kristi Jesú. 29 tilheyrum við Kristi og erum því sannir afkomendur Abrahams og öll þau loforð sem Guð gaf honum, tilheyra okkur.

Veja também

Publicidade
Bíblia Online Bíblia Online

Bíblia Online • Versão: 2026-06-29_22-07-56-